flugfréttir
Lufthansa Group lítur björtum augum á sumarið
- Eiga von á því að eftirspurn eftir flugi muni taka kipp fyrir sumarið
Lufthansa Group er vongott um að sumarið í ár verði töluvert betra heldur en í fyrra
Lufthansa Group, móðurfélag Lufthansa og Austrian Airlines, er bjartsýnt á að snarpur viðsnúningur eigi eftir að verða í rekstri dótturfélaganna á þessu ári og telja forsvarsmenn fyrirtækisins að töluverðum bata verði náð í sumar með fjölgun farþega.
Lufthansa Group telur að dreifing bóluefnisins við kórónaveirufaraldrinum eigi eftir að opna fyrir aukningu í flugumferð á ný áður en sumarvertíðin hefst en ekki eru öll flugfélög á sama máli
og ríkir svartsýni hjá mörgum þeirra varðandi horfurnar á þessu ári.
Carsten Spohr, framkvæmdarstjóri Lufthansa, sagði í viðtali í þættinum StraightTalk á Netinu á vegum Eurocontrol
að hann telur að með tilkomu bóluefnis og afnám á reglugerðum um sóttkví meðal farþega
eigi eftirspurn eftir farmiðum eftir að valda snöggri uppsveiflu í fluginu í sumar.
Sporh segir að mögulega sé um að ræða 40, 50 eða 60% aukningu miðað við sumarið 2019
en á meðan ómögulegt sé að spá fyrir um hversu mikil aukningin verður þá telur Spohr að Lufthansa
Group geri ráð fyrir að það verði einhver af þessum þremur prósentutölum.
Í augnablikinu þá tapar Lufthansa Group um 78 milljónum króna á hverja klukkustund á sólarhring vegna heimsfaraldursins en fyrirtækið hefur nýlega fengið 478 milljarða króna ríkistryggt lán frá þýsku ríkisstjórninni með vilyrði fyrir 945 milljörðum til viðbótar en Lufthansa Group telur að ekki sé víst að fyrirtækið þurfi á seinna láninu að halda sem fer eftir því hvernig árið 2021 verður.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.