flugfréttir

Hjól losnaði undan Pilatus PC-12 flugvél í aðflugi

- Fannst í húsgarði í íbúðarhverfi í Chicago

25. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 17:51

Lögreglumenn á vettvangi í húsgarði í hverfinu Jefferson Park í Chicago

Hjól féll til jarðar af lítilli flugvél í Chicago í Illinois í Bandaríkjunum í seinustu viku en dekkið endaði í garði við einbýlishús.

Hjólið losnaði af eins hreyfils flugvél af gerðinni Pilatus PC-12 sl. fimmtudag en flugvélin náði að lenda giftusamlega á
O´Hare-flugvellinum í Chicago skömmu síðar.

Tveir flugmenn voru um borð í flugvélinni auk fimm farþega en flugvélin er í eigu leiguflugfélagsins Boutique Air og var vélin að koma frá bænum Ironwood í Michigan.

Engan sakaði um borð og tókst lendingin vel eins og áður kom fram en starfsmenn flugvallarins urðu varir við mikið neistaflug sem kom undan vinstri hjólabúnaði vélarinnar eftir að hún lenti á brautinni og kom þá í ljós að ekkert dekk var á því hjólastelli.

Pilatus PC-12 flugvélin eftir lendinguna á O´Hare-flugvellinum sl. fimmtudag

Hjólið kom niður í garði í íbúðarhverfi í Jefferson Park sem er hverfi sem staðsett er beint undir aðflugi til vesturs af O´Hare-flugvellinum.

Ein kona, sem býr í húsinu þar sem dekkið kom niður, sagðist hafa heyrt mikinn hávaða og fór hún að athuga hvort hljóðið hefði komið úr kjallaranum en skömmu síðar hringdi nágranni hennar og sagði henni að lögreglan væri búin að skorða af húsið hennar og kom dekkið í ljós í kjölfarið.

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) rannsaka nú atvikið ásamt samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB).







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga