flugfréttir

Íhuga sjöundu flugbrautina í Denver

25. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 21:23

Denver-flugvöllurinn í Bandaríkjunum séður úr lofti

Stjórn flugvallarins í Denver í Bandaríkjunum íhugar nú að láta verða að framkvæmdum á nýrri flugbraut sem yrði þá sjöunda flugbrautin á vellinum.

Vangavelturnar um sjöundu flugbrautina eru ekki nýjar af nálinni en meira en einn og hálfur áratugur er síðan að fyrst var farið að ræða um möguleika á sjöundu brautinni.

Kostnaður við framkvæmdirnar gætu numið allt að 155 milljörðum króna og vonast stjórn flugvallarins eftir því að bandaríska ríkisstjórnin muni setja bróðurpartinn af fjármagninu í framkvæmdirnar.

Langt er í land þangað til að framkvæmdir geta hafist ef af þeim verður en fyrst þarf að fá leyfi, framkvæma umhverfismat auk þess sem mikil skipulagsvinna væri framundan en framkvæmdirnar fela einnig í sér lagningu akbrauta.

Til stendur að hefja útboð í lok þessa mánaðar í ýmisleg verk sem fyrst þyrfi að ráðast í á borð við hönnunarvinnu og umhverfismat en þegar framkvæmdir hefjast gætu þær tekið allt að 8 ár.

Áður en heimsfaraldurinn skall á var talið að farþegum um Denver-flugvöll ætti eftir að fjölga um þriðjung fyrir árið 2030 og gætu því orðið 94 milljónir á ári eftir níu ár.

Til þess að anna þeim farþegafjölda og meðfylgjandi flugumferð þyrfti því að ráðast í stækkun flugvallarins og með sjöundu flugbrautinni væri hægt að dreifa álaginu er kemur að flugtökum og lendingum.

Svo má segja að stjórn flugvallarins hafi verið að spá í sjöundu flugbrautinni alveg frá því að sú sjötta var tekin í notkun árið 2003 sem er braut 34L/16R sem er 16.000 fet á lengd sem samsvarar 4.8 kílómetrum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga