flugfréttir
Wizz Air með næstmestu umsvifin í sumar í Osló
Wizz er verður í sumar annað umsvifamesta flugfélagið á Gardermoen-flugvellinum í Osló í Noregi
Ungverska lágfargjaldafélagið Wizz Air stefnir á að hefja flug frá Osló til enn fleiri áfangastaða í Evrópu á þessu ári þrátt fyrir óánægju meðal nokkurra þingflokka á norska þinginu sem hafa fordæmt útrás félagsins og sérstaklega í innanlandfluginu í Noregi.
Wizz Air stefnir á að hefja áætlunarflug frá Gardermoen-flugvelli um miðjan maí til Alicante, Chania, Larnaca og til
Las Palmas á Kanaríeyjum og í júní mun félagið byrja að fljúga til Split í Króatíu.
Með þessu verður Wizz Air því annað umsvifamesta flugfélagið á Gardermoen-flugvellinum í sumar
með flug til 20 áfangastaða og þar af til tíu áfangastaða í innanlandsflugi
og verður félagið því umsvifameira en norska flugfélagið Widerøe sem mun fljúga til 19 áfangastaða í sumar frá Osló.
Í dag er Norwegian með þriðju mestu umsvifin en félagið flýgur til 14 áfangastaða í Noregi en von er á því að félagið
eigi eftir að fjölga áfangastöðum á ný þegar nær dregur sumrinu.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.