flugfréttir
Íhuga alsherjarbann við öllu flugi til og frá Þýskalandi
Rekstur Lufthansa yrði enn erfiðari ef farið verður út í þær aðgerðar að setja bann við öllu flugi til og frá Þýskalandi
Ríkisstjórn Þýskalands er sögð vera að íhuga að setja alsherjarbann á allar flugsamgöngur til og frá Þýskalandi til þess að sporna við útbreiðslu af nýju afbrigði af kórónaveirunni en fjöldi smita fer vaxandi nú víðast hvar í Evrópu og víðar.
Þjóðverjar eru nú hálfnaðir í gegnum annað útgöngubannið sem mun vara fram í miðjan febrúar en þýsk
stjórnvöld óttast mest að breska afbrigði veirunnar eigi eftir að ná yfirhöndinni í faraldrinum í Þýskalandi.
Horst Seehofer, innanríkisráðherra Þýskalands, hefur staðfest að stjórnvöld séu að skoða möguleikann á því að
setja á bann við næstum öllu áætlunarflugi til og frá Þýskalandi líkt og Ísraelar gerðu í fyrra til þess að takmarka
útbreiðslu veirunnar.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, fór þess á leit við innanríkisráðherra að hann myndi athuga hvaða leiðir væri
hægt að fara til þess að takmarka útbreiðslu breska afbrigðisins en bann við öllu flugi til og frá Þýskalandi
myndi hafa gríðarlegar afleiðingar í för með sér fyrir Lufthansa sem hefur nú þegar orðið illa úti vegna
faraldursins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.