flugfréttir

Boeing 737 MAX fær að fljúga á ný í Evrópu

- EASA gefur út flughæfnisvottum fyrir MAX vélarnar og afléttir flugbanni

27. janúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:19

EASA lýsti því yfir í dag að Boeing 737 MAX þoturnar geta byrjað að fljúga á ný í Evrópu

Evrópsk flugmálayfirvöld (EASA), hafa gefið aftur út flughæfnisvottun fyrir Boeing 737 MAX þoturnar sem þýðir að vélarnar geta farið að fljúga aftur um evrópska lofthelgi á næstunni og hefur 22 mánaða flugbanni því verið aflétt.

EASA hefur birt lista og fyrirmæli til flugrekenda yfir þau atriði sem þarf að fara yfir áður en hver Boeing 737 MAX þota getur hafið sig á flug að nýju með farþega.

„Eftir langa og þrotlausa vinnu og greiningu sem framkvæmd hefur verið að undanförnu af EASA þá höfum við metið það sem svo að Boeing 737 MAX getur með öruggum hætti byrjað að fljúga á ný“, sagði Patrick Ky, yfirmaður yfir samgönguöryggisnefnd Evrópu.

Meðal þeirra atriði sem þarf að huga að er að uppfæra hugbúnað sem tengist MCAS-búnaði vélanna, koma fyrir hugbúnaði í flugtölvu og uppfæra búnað fyrir flugstjórnunartölvu (FCC), aðskilja rafmagnsleiðslur sem liggja frá stjórnklefanum aftur í lágrétta stélflötinn („horizontal stabilizer“), uppfæra flughandbók vélarinnar og þá að lokum þurfa flugmenn að sækja uppfært þjálfunarnámskeið á vélarnar sem fram fer í flughermi.

Stjórnklefi um borð í Boeing 737 MAX þotu

Þá þarf að framkvæma prófanir á skynjurum sem greina áfallshorn vélanna („angle of attack sensors“) og fljúga sérstakt tilraunaflug til þess að ganga úr skugga um að öll kerfin og uppfærslur séu að virka.

EASA hefur tilgreint hver munurinn er á úttekt stofnunarinnar á 737 MAX og þeirra krafa sem bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) settu og má þar meðal annars nefna að farið er fram á að setja takka í öðrum og áberandi lit í öryggirofatöflu (circuit breakers panel) sem tengist stýrishrisstara („stick shaker“) ef áhöfn vélarinnar afhengir eða tengir það kerfi með röngum hætti.

Samkvæmt afhendingaráætlun frá Boeing þá á framleiðandinn eftir að afhenda 40 Boeing 737 MAX þotur sem búið er að framleiða til evrópskra flugfélaga og þá voru 540 ósmíðaðar 737 MAX þotur á lista þann 31. desember sl. sem til stendur að afhenda til Evrópu.

Í dag hafa því flugmálayfirvöld í Evrópu, Kanada, Bandaríkjunum, Mexíkó og Brasilíu gefið út nýja flughæfnisvottum fyrir Boeing 737 MAX þoturnar og er von á að flugmálayfirvöld í fleiri löndum fylgi í kjölfarið á næstunni.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga