flugfréttir
Farþegar enn 90 prósent færri í ársbyrjun miðað við árið 2019
Flugvélar í flota easyJet á Tegel-flugvellinum í Berlín í Þýskalandi
Breska lágfargjaldafélagið easyJet gerir ekki ráð fyrir að fljúga nema 10 prósent af sætaframboðinu árið 2019 á öðrum árshelmingi þessa árs þrátt fyrir að það verði farið að líða að sumri.
Ástæðan er vegna áframhaldandi áhrifa af sóttvarnaraðgerðum, ferðatakmörkunum og útgöngubanni sem enn ríkir
víðast hvar í Evrópu en fjöldi þeirra farþega sem fljúga með félaginu eru enn tæplega 90 prósent
færri miðað við árið 2019.
Rekstarkostnaður félagsins er þó í takt við þær spár sem easyJet hafði gert eftir seinustu
niðurskurðaráætlanir eftir að félagið sagði upp 1.400 manns og lækkaði rekstarkostnað sinn og hefur
félagið náð því að draga úr taprekstri niður í tæpan 1 milljarð króna á dag.
Þrátt fyrir mun minni umsvif þá er um helmingur af flugflota easyJet í notkun en félagið segir að
á fyrsta árshelmingi ársins 2021 eru 152 flugvélar að fljúga af þeim 318 flugvélum sem eru í flota félagsins.
EasyJet hefur lausafé upp á 439 milljarða króna til þess að halda sér á floti sem félagið hefur náð
að afla sér meðal annars með því að selja flugvélar og taka þær til baka á leigu auk þess sem félagið
hefur samið um að fresta afhendingum á nýjum þotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.