flugfréttir
Ein stærsta flugfélagasamsteypa í Kína gjaldþrota
- Farið fram á gjaldþrotaskiptum yfir HNA Group
HNA Group er móðurfélag yfir 13 flugfélaga auk þess sem fyrirtækið á fleiri hundruð önnur fyrirtæki í ýmsum rekstri
Kínverska fjárfestingarsamsteypan HNA Group hefur lýst yfir gjaldþroti en fyrirtækið var móðurfélag flugfélagsins Hainan Airlines sem er fjórða stærsta flugfélagið í Kína.
Þrátt fyrir gjaldþrotið þá segir að flugfélagið Hainan Airlines muni halda áfram starfsemi sinni og halda
áfram flugrekstri en HNA Group var einnig móðurfélag
Grand China Air, Lucky Air, Tianjin Airlines, Urumqi Airlines,
Beijing Capital Airlines auk fleiri flugfélaga.
Alls voru þrettán flugfélög í eigu HNA Group
og telur samanlagður flugfloti félaganna 900 flugvélar
en í yfirlýsingu frá HNA Group segir að starfsemi
allra flugfélaganna sé með eðlilegum hætti í augnablikinu
þrátt fyrir gjaldþrotið.
Fram kemur að framtíð allra flugfélaganna sé í óvissu eftir þessi tíðindi en stjórn HNA Group fékk úrskurð í morgun frá dómstóli í Kína um að hluthafar hafi tekið þessa ákvörðun þar sem skuldir þeirra væru orðnar of miklar og væri því farið fram á gjaldþrotaskipti
yfir fyrirtækinu.
Gjaldþrot HNA Group snertir yfir 2.000 fyrirtæki í ýmsum iðnaði en fyrirtækið átti meðal annars hlut í Hilton hótelkeðjunni og eru eignir fyrirtækisins metnar á yfir 19 þúsund milljarða króna en skuldir fyrirtækisins nema um 10 þúsund milljörðum.
Höfuðstöðvar HNA Group
Sögu HNA Group má rekja aftur til ársins 1993 en saga þess byrjaði með stofnun Hainan Airlines og fóru umsvif flugfélagsins ört vaxandi og byrjaði HNA Group fljótlega að fjárfesta í öðrum fyrirtækjum.
HNA Group hefur einnig fjárfest í mörgum öðrum flugfélögum á borð við Hong Kong Airlines, Comair og Tap Air Portugal og þá keypti fyrirtækið Hahn-flugvöllinn í Frankfurt
í Þýskalandi árið 2016 auk þess sem fyrirtækið átti 35% hlut í Cargolux.
Þá sá HNA Group um rekstur á 13 flugvöllum en meðal þeirra eru Haikou Meilan International Airport, Sanya Phoenix International Airport, Qionghai Boao Airport, Yichang Sanxia Airport, Weifang Nanyuan Airport, Manzhouli Xijiao Airport, Anqing Tianzhushan Airport, Tangshan Sannvhe Airport og Songyuan Chaganhu Airport.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.