flugfréttir
Flair Airlines pantar þrettán Boeing 737 MAX þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX þotu í litum Flair Airlines
Kanadíska lágfargjaldarfélagið Flair Airlines hefur lagt inn pöntun í þrettán þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 8 en félagið, sem var stofnað árið 2005, hefur í dag þrjár þotur í flotanum sem eru af gerðinni Boeing 737-800.
Flair Airlines, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Edmonton í Kanada, markaðssetur sig sem ofurlágfargjaldarflugfélag
og flýgur félagið til ellefu áfangastaða í Kanada.
Flugfélagið mun taka flugvélarnar þrettán á leigu frá fyrirtækinu 777 Partners sem nýlega lagði inn pöntun í 24 þotur
af gerðinni Boeing 737 MAX 8 með möguleika á sextíu þotum til viðbótar.
„Kanadabúar hafa verið að greiða of dýr fargjöld í allt of langan tíma“, segir Stephen Jones, forstjóri Flair Airlines, sem
segir að nýju Boeing 737 MAX þoturnar eigi eftir að hjálpa félaginu til við að halda fargjöldum í lágmarki og auka
umsvif félagsins til að anna eftirspurn.
Flugfélagið á nú þegar í viðræðum við fleiri flugvelli í Kanada um hagstæð þjónustu- og lendingargjöld
til þess að fjölga áfangastöðum sínum á næstunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.