flugfréttir
Spá því að flugumferðin í Evrópu fari dvínandi á næstunni
Eurocontrol annast alla flugumferðarstjórnun og flugleiðsöguþjónustu í Evrópu
Evrópska flugumferðarstofnunin Eurocontrol hefur gefið frá sér nýja skýrslu með tölur yfir flugumferð en þar kemur fram að ástandi í fluginu í Evrópu fari versnandi.
Talið er að það eigi eftir að vera 64% minni flugumferð í Evrópu fram á sumar eða þangað til í júní samanborið
við sama árstíma fyrir heimsfaraldurinn og spilar þar stórt hlutverk ný bylgja af kórónaveirusmitum sem er að ganga
yfir flest lönd í Evrópu.
Talið er að fjölgun smita og versnandi ástand eigi eftir að verða til þess að fleiri Evrópuríki eigi eftir að innleiða
hertari reglur og strangari lög um útgöngubann sem leiðir til þess að flugfélög fara aftur að skera niður og draga úr framboði
á flugferðum.
Eamonn Brennan, yfirmaður yfir Eurocontrol, tók fram að febrúar og mars eigi eftir að vera með eindæmum lélegir
mánuðir er kemur að farþegaflugi en þó bendir flest til þess að á þessu tímabili gæti fraktflug farið að sækja í sig veðrið.
„Jafnvel aprílmánuður á eftir að vera lélegur en það má þó vænta þess að það kemur smá kippur um páskana. Flugumferðin
í vor verður sennilega aðeins 25 til 30 prósent af því sem myndi teljast eðlilegt. Þetta er algjör hörmun fyrir
flugið í Evrópu“, segir Brennan.
Fram kemur að ef einhver lönd í Evrópu fara aðeins að slaka á sóttvarnarreglum þá gæti flugumferðin í sumar
aukist upp í helminginn af því sem var árið 2019 og með tilkomu bóluefnis er þess að vænta að fólk fari í auknu mæli
að ferðast sér til skemmtunnar.
Má því vænta þess að sjá einhvern bata um mitt árið og mögulega verði flugumferðin síðar um sumarið komin í 79% af þeirri umferð sem var fyrir faraldurinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.