flugfréttir

Reyndi að stjórna flugumferð með talstöð frá heimili sínu

- Hafði í hálft ár gefið flugvélum fyrirmæli frá íbúð sinni í Berlín

1. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:49

Lögreglan í Berlín náði loksins að staðsetja íbúðina þaðan sem fyrirmælin komu sem sendu höfðu verið reglulega til flugumferðarinnar kringum Berlín

Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í íbúð sinni í Berlín sl. föstudag eftir að í ljós kom að hann hefur ítrekað stundað þá iðju að senda frá sér fyrirmæli til flugmanna í gegnum talstöð á sömu tíðni og notuð er til flugumferðarstjórnunnar.

Samkvæmt þýska fréttamiðlinum Politiken í Berlín kemur fram að maðurinn, sem er 32 ára gamall, hafi sl. 6 mánuði stillt talstöðvar og fjarskiptabúnað á tíðni sem notuð er í radíósamskiptum og gefið flugmönnum fyrirmæli um hvert þeir eigi að fljúga og hvernig þeir eigi að haga sínu flugi.

Fram kemur að flugmenn í stórum farþegaflugvélum, frakflugvélum og á minni einkaflugvélum hafi fengið fyrirmæli frá manninum auk þess sem hann hefur gefið lögregluþyrlum tilskipanir um hvert þeir eigi að fljúga.

Lögreglan í Berlín og þýsk yfirvöld hafa að undanförnu unnið hörðum höndum að því að staðsetja hvaðan þessi fölsku fyrirmæli koma og loks á föstudag tókst að staðsetja íbúð mannsins í götunni Lindenstrasse í hverfinu Köpenick í suðausturhluta borgarinnar og voru tæki til radíósamskipta, talstöðvar auk fjarskiptabúnaðs gerður upptækur.

Í yfirlýsingu frá lögreglunni í Berlín kemur fram að þrátt fyrir að fyrirmæli mannsins á fjarskiptatíðninni hafi verið mjög fagmannleg þá getur slíkt skapað stórhættulegar aðstæður sem mögulega getur valdið flugslysum.

Manninum var sleppt eftir yfirheyrslum síðar um kvöldið en hann á von á frekari eftirmálum þegar málið verður tekið fyrir af dómstólum og þýskum flugmálayfirvöldum. Yfirvöld hafa ekki viljað tjá sig frekar um hvernig manninum tókst að komast yfir þann búnað sem hann hafði undir höndum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga