flugfréttir

Boeing gæti misst pantanir í 118 Boeing 777X þotur

- Fjöldi staðfastra pantana lækkar úr 309 þotum niður í 191

2. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:52

Boeing 777X þota í samsetningu hjá Boeing í verksmiðjunum í Everett

Svo gæti farið að Boeing eigi eftir að missa um þriðjung af öllum þeim pöntunum sem borist hafa í nýju Boeing 777X breiðþotuna þar sem flugvélaframleiðandinn hefur nú tilkynnt um enn aðra seinkunina á því að þotan komi á markað.

Boeing tilkynnti um seinkun á Boeing 777X framleiðslunni nú um helgina og lýtur því út að fyrsta eintakið verði ekki afhent fyrr en árið 2023 en til stóð að afhenda fyrstu þotuna á næsta ári.

Fram kemur að Boeing 777X þotan þurfi að gangast undir nauðsynlegar hönnunarbreytingar sem snertir rafkerfi um borð í þotunum samkvæmt kröfu fá bandarískum flugmálayfirvöldum en aðalástæðan fyrir seinkuninni er þó sú að Boeing sér ekki fram á að eftirspurn eftir langflugi milli fjarlægra áfangastaða eigi eftir að lagast í bráð og hefur Boeing því ákveðið að fresta afhendingum til ársins 2023.

Vegna þessa er von á því að fleiri flugfélög eigi eftir að hætta við þotuna sem þýðir að verkefnið verði enn dýrkeyptara fyrir Boeing.

Dave Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, telur að það eigi eftir að taka flugiðnaðinn allt að 3 ár til að ná sömu hæðum og var árið 2019 og allur vöxtur umfram það mun taka nokkur ár til viðbótar í framhaldi af því sem þýðir að eftirspurn eftir nýjum þotum og þá sérstaklega breiðþotum á eftir að liggja í dvala.

Eins og staðan var hafði Boeing fengið pantanir í 309 eintök af Boeing 777X en Boeing hefur í dag skráð aðeins 191 þotur sem staðfestar pantanir sem þýðir að óvissa ríkir um pantanir í 118 eintök af þotunni.

Emirates er stærsti viðskiptavinurinn er kemur að Boeing 777X en flugfélagið hefur pantað 115 eintök. Emirates hefur lýst því yfir að vegna seinkanna kemur til greina að hætta við einhverjar þotur og panta fleiri Dreamliner-þotur í staðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga