flugfréttir

Boeing staðráðið í að koma með 797 á markaðinn

- Segja að unnið hafi verið að undirbúningi þotunnar þrátt fyrir COVID-19

2. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 22:56

Boeing hefur kynnt nýju farþegaþotuna sem „New Midsize Aircraft“ en talið er að þotan muni fá heitið Boeing 797

Boeing segist vera staðráðið í að halda áfram með þau áform sem gerð hafa verið varðandi þróun á nýrri farþegaþotu sem er ætlað að leysa af hólmi það skarð sem Boeing 757 skildi eftir sig.

Eins og margir kannast við er um að ræða þotu sem fengið hefur viðurnefnið Boeing 797 og var þegar farið að gera áætlanir varðandi þessa þotu árið 2017 með uppsetningu á sérstakri deild sem samanstendur af verkfræðingum og hönnuðum en upphaflega var farið að ræða þessar hugmyndir fyrir meira en áratug síðan.

Árið 2018 var byrjað að kynna þotuna fyrir áhugasömum viðskiptavinum og hefur þotan hingað til eingöngu verið kynnt af Boeing sem „New Midsize Aircraft“ (NMA) en komið hefur í ljós að þotan á líklega eftir að verða þekkt sem Boeing 797 þrátt fyrir að Boeing hefur ekki gefið það enn út opinberlega.

Verkefnið hefur ekki verið mikið í umræðunni frá því í fyrra vegna heimsfaraldursins en David Calhoun, framkvæmdarstjóri Boeing, tók það fram nýlega að fyrirtækið sé reglulega að vinna að undirbúningi fyrir framleiðslu þotunnar sem gæti komið á markað síðar á þessum áratug eða fyrir árið 2030.

Calhoun nefnir að mögulega gæti nýja farþegaþotan komið á markað árið 2026 en þróun á nýrri tækni gæti verið uppfærð reglulega á næstu fimm árum svo að þotan verði útbúin öllum helstu nýjungum sem völ er á þegar hún kemur á markað.

Boeing 787 er ætlað að fylla í skarðið á milli stærstu Boeing 737 MAX þotunnar sem er 737 MAX 10 og minnstu Dreamliner-þotunnar sem er Boeing 787-8.

Boeing 797 mun meðal annars fylla upp í skarðið sem Boeing 757 skildi eftir sig þegar framleiðslu hennar var hætt árið 2004

Boeing 787 verður breiðþota sem kemur með tveimur göngum og er talið að hún gæti tekið allt að 270 farþega í sæti og haft flugþol upp á 11 klukkustundir

Philippe Petitcolin, framkvæmdarstjóri fyrirtækisins Safran, sem framleiðir íhluti fyrir flugvélar frá Boeing og fyrir fleiri flugvélaframleiðendur, segir að árangur endurkomu Boeing 737 MAX þotunnar á markaðinn eftir kyrrsetningu gæti spilað inn í varðandi hvenær Boeing fer á fullt skrið með framleiðslu á Boeing 797.

Boeing 797 verður fyrsta þotan sem Boeing mun hanna frá grunni frá því að tilkynnt var um Dreamliner-þotuna árið 2004 en árið 2019 var talið að þörf væri fyrir 4.000 til 5.000 farþegaþotur í heiminum á næstu 20 árum í þeim stærðarflokki sem Boeing 797 mun tilheyra sem sameinar stærðarflokka Boeing 757 og Boeing 767.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga