flugfréttir

Nýtt flugfélag fær fyrstu E190 þotuna frá NAC á Írlandi

- Breeze Airways stefnir á að hefja flugrekstur á þessu ári

3. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:19

Fyrsta Embraer E190 þotan fyrir Breeze Airways

Írska flugvélaleigan Nordic Aviation Capital hefur afhent fyrstu Embraer E190 þotuna til bandaríska flugfélagsins Breeze Airways.

Breeze Airwaye er nýtt flugfélag sem stefnir á að hefja starfsemi á þessu ári en félagið, sem hefur höfuðstöðvar sínar í Utah í Bandaríkjunum, er stofnað af David Neeleman sem kom meðal annars að stofnun WestJet og JetBlue Airways á sínum tíma.

Embraer E190 þotan er sú fyrsta af þeim fimmtán Embraer-þotum sem Breeze Airways á von á því að fá á næstunni frá flugvélaleigunni en þotan er 14 ára gömul og var hún í flota Air Canada til ársins 2019 eða þangað til að Nordic Aviation Capital keypti þotuna.

Breeze Airways ætlar sér að einblína á áætlunarflug á milli minni bæja í Bandaríkjunum sem í dag hafa engar flugsamgöngur og tengja þá við stærri flugvelli.

Félagið hefur nú þegar fengið afhenta eina Embraer E195 þotu og á Breeze Airways von á 29 slíkum til viðbótar en með 15 þotum af gerðinni Embraer E190 á félagið alls von á því að vera komið með 45 þotur í rekstur þegar allar þoturnar hafa verið afhentar.

Upphaflega til stóð að félagið myndi heita Moxy Airways en í febrúar í fyrra var tilkynnt að Breeze Airways yrði nýtt nafn félagsins. Til stóð að flugfélagið myndi hefja starfsemi sína árið 2020 en þeim áformum var frestað vegna heimsfaraldursins.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga