flugfréttir
Tvö ný flugfélög að hefja starfsemi í Suður-Kóreu
Airbus A320 þota í litum Aero K og Boeing 787-9 Dreamliner-þota í litum Air Premia
Tvö ný flugfélög eru við það að hefja starfsemi sína í Suður-Kóreu og munu félögin hefja sín fyrstu áætlunarflug innan tíðar.
Bæði flugfélögin eru lágfargjaldarflugfélög en nú þegar eru fimm lágfargjaldarfélög í Suður-Kóreu og verða
lágfargjaldafélögin því bráðum alls sjö talsins sem er óvenju hátt hlutfall miðað við land sem er tiltölulega lítið á stærð.
Nýju flugfélögin tvö heita Air Premia og Aero K en Air Premia var stofnað árið 2017 og fékk félagið flugrekstarleyfi
í hendurnar árið 2018 en til stóð að félagið myndi hefja áætlunarflug í september sl. haust en því var frestað
vegna heimsfaraldursins.
Air Premia stefnir meðal annars á að fljúga langflug yfir Kyrrahafið til áfangastaða á borð við Los Angeles, Vancouver,
Honolulu og San Jose í Kaliforníu og ætlar félagið sér að nota Dreamliner-þotur af gerðinni Boeing 787-9 til flugsins.
Aero K fékk flugrekstarleyfið sitt afhent þann 28. desember sl. en félagið ætlaði upphaflega einnig að hefja
áætlunarflug í fyrra eða nánar tiltekið í mars árið 2020 en heimsfaraldurinn hafði áhrif á þau áform.
Aero K hefur fengið eina Airbus A320 afhenta og á félagið von á sjö slíkum þotum til viðbótar en félagið stefnir
á að fljúga fyrsta áætlunarflugið í mars sem er flug á milli suðurkóresku borgarinnar Cheongju og eyjunnar Jeju.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.