flugfréttir
Íranir vilja vita stöðuna á pöntun í 80 þotur frá Boeing
Boeing 747 júmbó-þota frá Iran Air
Stjórnvöld í Íran fara fram á að vita hver staðan er á risapöntun sem ríkisflugfélagið Iran Air lagði inn til Boeing árið 2016 í 80 þotur en pöntunin er metin á 2.159 milljarða króna.
Ríkisstjórn Donald Trumps lét ógilda pöntunina árið 2018 eftir að útflutningsbann var sett á aftur
á útflutning á flugvélum og flugvélavarahlutum til Írans.
Flugmálayfirvöld í Íran hafa farið fram á að vita hver staðan er á pöntuninni og sent Boeing
bréf þar sem óskað er eftir svörum varðandi samninginn sem gerður var fyrir fjórum árum síðan.
„Samningur Írans við Airbus og ATR hefur verið gerður ógildur. Varðandi pöntunina við Boeing þá höfum
við sent þeim bréf þar sem við viljum fá að vita hver örlög þeirrar pöntunar er“, segir yfirmaður
yfir írönskum flugmálayfirvöldum.
Árið 2016 pantaði Iran Air 80 þotur frá Boeing og samanstóð sú pöntun af flugvélum af gerðinni
Boeing 737 MAX og Boeing 777 en Iran Air gerði einnig samning við Airbus um kaup á 100
þotum og tuttugu þotum frá flugvélaframleiðandanum ATR.
Hinsvegar voru allir samningarnir háðir útflutningsbanni af hálfu bandarískra stjórnvalda þar
sem allir framleiðendurnir notast við íhluti sem framleiddur eru í Bandaríkjunum.
Iran Air náði samt sem áður að fá afhenta eina Airbus A321 þotu, tvær Airbus A330 breiðþotur
og þrettán ATR flugvélar áður en viðskiptabann var sett á aftur árið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.