flugfréttir

Fjöldi flugfarþega árið 2020 svipaður og var árið 2004

- Í besta falli verða flugfarþegar í ár helmingurinn af því sem var árið 2019

4. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 20:19

Millilandaflug með breiðþotum hefur orðið verst úti í heimsfaraldrinum

Árið 2020 mun fara í sögubækurnar sem eitt versta árið í fluginu en Alþjóðasamtök flugfélaganna (IATA) birtu sl. mánudag tölfræði yfir farþegatölur í heiminum fyrir árið sem leið.

Vegna heimsfaraldursins þá dróst fjöldi flugfarþega í heiminum það mikið saman að að fjöldi þeirra sem flugu með áætlunarflugi í fyrra voru álíka margir og fyrir sextán árum síðan.

Alls voru 1.795.000.000 farþegar sem ferðuðust með flugi í heiminum í í fyrra sem eru örlítið færri en sá fjöldi sem ferðaðist með flugi árið 2004 þegar flugfarþegar í heiminum voru 1.9 milljarður en þá var aftur komin uppsveifla í fluginu í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum þann 11. september árið 2001.

Fóru á mis við 2.9 milljarð farþega í fyrra

Flugfélögin í heiminum fóru í fyrra á mis við yfir 2.9 milljarð farþega þar sem 4.7 milljarður hefði átt að ferðast með flugi árið 2020. Árið 2019 voru 4.5 milljarður sem ferðuðust með flugi og er því um að ræða 65% samdrátt á farþegafjöldi í fyrra milli ára.

Mestur varð samdráttur í millilandaflugi en flugfarþegum sem flugu á milli landa dróst saman um 75.6 prósent í fyrra og þá mældist sætanýting í millilandaflugi í heiminum aðeins 19 prósent.

IATA telur að fjöldi flugfarþega í heiminum á þessu ári gæti orðið helmingurinn af því sem var árið 2019 eða um 2.2 milljarður sem væri þó 22% aukning miðað við árið 2020 og 50% af fjölda farþega árið 2019 og þá sambærilegur farþegafjöldi og var í heiminum árið 2006.

Fjöldi flugfarþega í heiminum í fyrra dróst saman um 65% vegna heimsfaraldursins

Fram kemur að ómögulegt sé að spá um hver þróunin verður þar sem það veltur allt á ferðatakmörkunum í heiminum vegna faraldursins og útbreiðslu á nýjum og stökkbreyttum afbrigðum af veirunni en í versta falli gæti svo farið að aðeins verði 13 prósenta aukning á flugfarþegum miðað við árið 2020.

Samtökin segja að árið 2021 sé ekki að byrja neitt sérstaklega vel og höfðu bókanir á flugfargjöldum í janúar dregist saman um 70% miðað við sama tíma í fyrra en þá var heimsfaraldurinn ekki skollinn á þrátt fyrir fjölgun kórónaveirusmita víðsvegar.

Alexandre de Juniac, yfirmaður IATA, segir að ný afbrigði af veirunni hafa dregið töluvert úr bjartsýni meðal fólks í flugiðnaðinum þar sem áður var talið að dreifing bóluefnis um heimsbyggðina ætti eftir að losa um hömlur og takmarkanir og blásu nýju lífi í iðnaðinn.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga