flugfréttir
Framleiðsla á stéli fyrir 737 MAX mun flytjast til Indlands
Framleiðsla á stéli fyrir Boeing 737 MAX mun flytjast til Indlands
Boeing hefur tilkynnt að til standi að flytja framleiðslu á lóðréttum stélflötum á stéli á Boeing 737 MAX þotunum til Indlands.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu Tata Boeing Aerospace sem er dótturfélag í eigu Boeing og Tata Advanced Systems (TAS) og markar þetta upphafið af auknum umsvifum í framleiðslu
á vegum Boeing á Indlandi.
Stél á 737 MAX þotunum verða framleidd í Telangana-héraði og verður verksmiðjan þar útbúin fullkominni tækni þar sem verksmiðjuvélmenni og sjálfvirk tækni mun koma að smíði á stélunum.
Telangana-héraðið á Indlandi er að verða miðstöð fyrir framleiðslu í hátækniiðnaði og hefur aukist til muna framleiðsla þar á flugtengdum iðnaði
Verksmiðjur Tata Boeing í Telangana eru yfir 14.000 fermetrar á stærð en í dag fer þar fram framleiðsla á íhlutum fyrir AH-64 Apache þyrlurnar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.