flugfréttir

Undirbúa sig fyrir uppsveiflu og stefna á að ráða fleiri flugmenn

7. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:01

IndiGo sér fram á að eftirspurn eftir flugi eigi eftir að fara fram úr þeim væntingum sem gerðar voru fyrir heimsfaraldurinn.

Indverska lágfargjaldarfélagið IndiGo undirbýr sig nú fyrir að auglýsa eftir nýjum flugmönnum en félagið ætlar sér að ráða marga flugmenn á næstunni þar sem félagið gerir ráð fyrir að eftirspurn eftir flugi eigi eftir að fara fram úr þeim væntingum sem gerðar voru fyrir heimsfaraldurinn.

IndiGo ætlar sér að tryggja sér nýja flugmenn til framtíðar með því að bjóða upp á námsleið þar sem flugfélagið mun standa straum af kostnaði af flugnámi hjá útvöldum einstaklingum með því markmiði að þeir verða ráðnir sem flugmenn til félagsins að námi loknu.

Fyrir heimsfaraldurinn var verulegur skortur á flugmönnum á Indlandi þar sem eftirspurn eftir flugi var komin yfir þann fjölda af flugmönnum sem voru tiltækir til þess að fljúga þeim farþegaflugvélum sem sinntu þeirri eftirspurn.

Í fyrra voru hinsvegar þúsundir flugmanna sem var sagt upp vegna heimsfaraldursins og margir sem gáfu framtíðaráform sín um að verða flugmenn upp á bátinn en núna hefur töluverðum bata verið náð og er séð fram að þörf fyrir nýja flugmenn mjög fljótlega.

IndiGo hefur gert samning við flugskólann Chimes Aviation Academy og er stefnt á að byrja á því að velja 15 nýja flugnema sem verða þjálfaðir í tvö til tvö og hálft ár.

Pradeep Singh Kharola, flugmálaráðherra Indlands, segir að hann vilji sjá aukningu í þjálfun nýrra flugmanna á Indlandi og vill hann gera Indland að miðstöð fyrir flugnám. Kharola segir að á hverju ári séu gefin út um 700 ný atvinnuflugmannsskírteini á Indlandi en um helmingur þeirra flugmanna sækja verklega þjálfun erlendis.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga