flugfréttir
Auður Ýr ráðin forstöðumaður flugverndar hjá Isavia
Auður Ýr Sveinsdóttir hefur verið ráðin í stöðu forstöðumanns flugverndar á Keflavíkurflugvelli
Auður Ýr Sveinsdóttir hefur verið ráðin í stöðu forstöðumanns flugverndar hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli.
Auður hefur síðastliðin fjögur ár verið aðstoðarforstjóri hátæknifyrirtækisins Völku ásamt því að stýra rekstrar- og mannauðssviði félagsins. Þar áður var hún yfirmaður gæðastjórnunar, LEAN og innri samskipta hjá Rio Tinto (ISAL) í Straumsvík.
Auður er með B.Sc. gráðu í sjávarvísindum frá Coastal Carolina University og M.Sc. í umhverfisefnafræði frá University of Maryland í Bandaríkjunum.
„Auður er með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu sem mun nýtast okkur vel í uppbyggingu einingarinnar til framtíðar,“ segir Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar hjá Isavia. „Hún er frábær viðbót við reynslumikinn hóp í flugverndinni á Keflavíkurflugvelli.“
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.