flugfréttir
Köttur uppgötvaðist læstur í stjórnklefa á Boeing 737 þotu
Ekki er vitað hversu lengi kisi hafði verið innilokaður í stjórnklefanum á Boeing 737 þotunni hjá El Al Israel Airlines
Köttur uppgötvaðist í stjórnklefa á Boeing 737 þotu hjá ísraelska flugfélaginu El Al Israel Airlines á dögunum en þotan hafði verið kyrrsett frá því 24. janúar og má því áætla að kisi hafi dvalið í nokkra daga inni í flugvélinni.
Þotunni, sem er af gerðinni Boeing 737-900ER, var seinast flogið frá Dubai til Tel Aviv þann 24. janúar og var þotunni því næst
færð í skammtímageymslu.
Það var starfsmaður á Ben Gurion flugvellinum sem kom auga á kisa þar sem hann sat spakur í glugga stjórnklefans flugstjóramegin
og tók starfsmaðurinn mynd af kettinum og deildi á samfélagsmiðla.
Kötturinn hafði meðal annars klórað og krafsað hluta af innréttingunni í kringum stjórntækin um borð meðan hann var læstur inni
Ekki er vitað hversu lengi kisi hafði dvalið í stjórnklefanum en allavega nógu lengi að hann hafði klórað og krafsað það mikið í
klæðningu í kringum stjórntæki vélinnar að stórsá á.
Þotan, sem ber skráninguna 4X-EHB, er ein af þeim átta Boeing 737-900ER þotum sem El Al hefur í flota sínum og var vélin
afhent til félagsins árið 2013.
Áætla má að framkvæma þurfi smávægilegar lagfæringar á stjórnklefanum vegna skemmdanna eftir kisa áður en hún fer aftur í loftið.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.