flugfréttir
Von á bráðabirgðaskýrslu í vikunni
Boeing 737-500 þotan fórst skömmu eftir flugtak frá Jakarta þann 9. janúar síðastliðinn
Rannsóknarnefnd flugslysa í Indónesíu gerrir ráð fyrir að bráðabirgðaskýrsla verði birt næstkomandi miðvikudag vegna flugslyss er farþegaþota af gerðinni Boeing 737-500 frá flugfélaginu Sriwijaya Air fórst skömmu eftir flugtak frá Jakarta þann 9. janúar síðastliðinn.
Þotan var nýfarin í loftið áleiðis til borgarinnar Pontianak á eyjunni Borneó þegar þotan hvarf af ratsjá. Brak úr þotunni fannst
skömmu síðar í Jövuhafi en um borð í vélinni var sex manna áhöfn og 56 farþegar og var enginn sem komst lífs af.
Flugslysasérfræðingar sendu flugrita vélarinnar og hluta af sjálfstýringu, sem tengist sjálfvirku eldsneytisinngjöfinni, fljótlega til rannsóknar í Bretlandi og í
Bandaríkjunum en hljóðriti þotunnar hefur enn ekki fundist en hann gæti búið yfir mikilvægum upplýsingum þar sem hann
heldur utan um samtöl flugmannanna.
Þetta er fimmta flugslysið hjá Sriwijaya Air frá árinu 2008 en það fyrsta mannskæða en í hinum tilvikunum var um að ræða atvik þar sem flugvélar fóru út af flugbraut.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.