flugfréttir
Eldur kom upp í einkaþotu eftir magalendingu í París
Einkaþotan sem um ræðir ber skráninguna 9H-FAM
Eldur kom upp í einkaþotu eftir að hún lenti með hjólastellið uppi í París í Frakklandi í morgun.
Einkaþotan, sem er af gerðinni Embraer Phenom 100, lenti á Le Bourget flugvellinum eftir flug frá Feneyjum á Ítalíu með öll hjólin uppi og rann
vélin eftir brautinni með tilheyrandi neistaflugi.
Um borð í þotunni voru tveir flugmenn og einn farþegi og sakaði engan en allir voru færðir í stutta læknisskoðun í kjölfarið.
Ekki kemur fram hver ástæðan var fyrir því að hjólastell þotunnar voru ekki niðri en slökkvilið var fljótt á staðinn og náði
að slökkva eldinn sem kom upp á innan við mínútu en þotan rann nokkur hundruð metra eftir brautinni.
Loka þurfti fyrir flugumferð um Le Bourget flugvöllinn í nokkrar klukkustundir í kjölfarið og hefur rannsóknarnefnd flugslysa í Frakklandi hafið rannsókn
á atvikinu sem er flokkað sem alvarlegt flugatvik.
Fram kemur að fimm flugslysasérfræðingar hafi verið sendir á vettvang til þess að átta sig á því hvað fór úrskeiðis en einhverjir fréttamiðlar greina frá því að hjólastell vélarinnar hafi brotnað í lendingunni.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.