flugfréttir

Tvær ATR flugvélar hjá CSA Airlines vörslusviptar

9. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:18

Ein af ATR flugvélunum í flota CSA Airlines

Tékkneska flugfélagið CSA Airlines er komið í alvarlega slæma stöðu eftir að tvær ATR flugvélar félagsins voru vörslusviptar vegna skulda.

Það er flugvélaverkstæðið Czech Airlines Technics (CSAT) sem hefur gert flugvélarnar tvær upptækar en fyrirtækið er dótturfélag flugvallarins í Prag en CSA Airlines skuldar fyrirtækinu gjöld fyrir ýmsa þjónustu.

Smartwings Group, móðurfélag CSA Airlines, telur að vörslusviptingin sé ólögmæt og ætlar fyrirtækið að leita réttar síns en CSA Airlines hefur þurft að fella niður nokkrar flugferðir þar sem ekki er hægt að nota flugvélarnar tvær.

Talsmaður CSAT segir að CSA Airlines skuldi fyrirtækinu gjöld fyrir viðhaldsskoðanir, viðgerðir og aðra þjónustu og kemur fram að flugfélaginu hafi verið gert viðvart og að þeim hafi boðist aðrar lausnir í stöðunni en CSAT segir að ekkert svar hafi borist frá flugfélaginu og var því ákveðið að grípa til aðgerða.

Talsmaðurinn segir að kyrrsetning flugvélanna hafi ekki haft nein áhrif á starfsemi félagsins en CSA Airlines er því ekki sammála og segir talsmaður flugfélagsins að félagið hafi ekki fengið neina viðvörun og hafi félagið þurft að fella niður nokkur flug sem til stóð að fljúga með ATR flugvélunum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga