flugfréttir

Singapore Airlines pantar ellefu Boeing 777X þotur

9. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 16:24

Tölvugerð mynd af Boeing 777X í litum Singapore Airlines

Singapore Airlines hefur lagt inn pöntun til Boeing í ellefu Boeing 777X breiðþotur en með pöntuninni mun heildarfjöldi þeirra pantana sem komnar eru í arftaka Boeing 777 þotunnar fara upp í 202 þotur.

Á móti mun Singapore Airlines hætta við fjórtán Boeing 787 þotur og taka þess í stað ellefu Boeing 777-9 þotur en Singapore Airlines hefur gert samkomulag bæði við Boeing og Airbus um að fá að breyta þeim pöntunum sem félagið hefur gert í þeim tilgangi að fresta afheningum á nýjum þotum og dreifa þeim yfir lengra tímabil.

Með því mun Singapore Airlines ná að spara sér allt að 512 milljarða króna sem kemur félaginu sér vel þar sem Singapore Airlines er eitt af þeim flugfélögum sem er að jafna sig eftir heimsfaraldurinn og berst enn í bökkum við stöðuna sem hefur verið mjög slæm fyrir flugfélög sem hafa flogið langflug milli heimsálfa.

Singapore Airlines átti þegar inn pöntun í 20 Boeing 777-9 breiðþotur og á félagið því í dag von á 31 þotu af þeirri gerð en félagið á einnig von á 28 Dreamliner-þotum af gerðinni Boeing 787 og 31 þotu af gerðinni Boeing 737 MAX 8 sem fara til dótturfélagsins Silk Air.

Singapore Airlines skilaði inn tapi árið 2020 í fyrsta sinn í 48 ár og nam taprekstur félagsins í fyrra 269 milljörðum króna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga