flugfréttir
Air Canada fellir niður flug til 17 borga tímabundið
Boeing 737 MAX þota frá Air Canada
Air Canada hefur ákveðið að fella niður tímabundið allt áætlunarflug til 17 áfangastaða í Bandaríkjunum, Evrópu, Asíu og í Suður-Ameríku.
Í yfirlýsingu frá Air Canada kemur fram að þetta hafi verið ákveðið þar sem félagið á í vanda með að halda úti flugáætlun
á sama tíma og fjölmörg lönd eru enn með strangar sóttvarnarreglur, ferðatakmarkanir og útgöngubann sem gerir félaginu erfitt fyrir.
Frá og með 12. febrúar mun Air Canada fella niður flug til áfangastaða í Bandaríkjunum, Kólumbíu, Evrópu og í Asíu og verður
ekki flogið til þessara áfangastaða að minnsta kosti til 30. apríl næstkomandi.
Þetta mun einnig leiða til uppsagna og segir Air Canada að búast megi við því að allt að 1.500 starfsmönnum verði sagt upp
tímabundið á meðan og verður einnig skorið niður meðal þeirra sem gegna stjórnunarstöðum innan félagsins.
Air Canada mun meðal annars fella niður flug milli Toronto og Boston, Washington, Denver, New York
og Fort Myers í Flórída auk þess sem ekki verður flogið milli Montréal og Boston og LaGuardia-flugvallarins
í New York.
Þá mun félagið fella niður flug til Bogota, Dublin, Sao Paulo, London Heathrow og Tókýó auk þess
sem félagið mun fresta öllu flugi á milli Toronto og Tel Aviv.
Eins og staðan er í dag þurfa allir þeir farþegar sem ferðast til Kanada að gangast undir skimum og þurfa
að gista á viðurkenndu hótel á meðan þeir bíða eftir niðurstöðum á þeirra kostnað sem getur numið
allt að 200.000 krónum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.