flugfréttir

Sá ekki stöðu á hjólabúnaði þar sem iPad-spjaldtölvan var fyrir

- Magalenti Cessna 172 flugvél á flugvelli í Atlanta

15. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 11:47

Flugmaður með spjaldtölvu á stýri í stjórnklefa á Cessna C172 - Myndin tengist ekki fréttinni beint

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) hefur gefið frá sér skýrslu varðandi atvik sem átti sér stað þann 13. febrúar árið 2019 er flugvél af gerðinni Cessna C172RG magalenti á Cobb County flugvellinum í Atlanta.

Flugmaður vélarinnar sagði að hann hafi tekið eftir því að hann væri aðeins of hár í aðfluginu og dró hann úr aflinu en heyrði við það hljóð frá ofrisflautu vélarinnar.

Flugmaðurinn fór yfir mæla vélarinnar og gaf því gaum að mælir sem sýnir soggreinaþrýsting var á núlli og hafi hann því ætlað að hætta við lendingu og fara í fráhvarfsflug („go around“) en hafi að lokum hætt við þá ákvörðun og ákveðið þess í stað að lenda.

Flugmaðurinn sagði að hann hafi ekki séð stöðuna á skaftinu sem setur hjólabúnaðinn niður þar sem iPad-spjaldtölva hans var fyrir. Þá sagði flugmaðurinn að í óðagotinu, þar sem honum fannst hann þurfa að lenda strax, hafi hann óvart talið sig vera á hefðbundinni Cessna C172 flugvél með föstum hjólabúnaði líkt og flestar flugvélar eru útfærðar af þeirri gerð.

Flugvélin magalenti á brautinni og varð fyrir minniháttar skemmdum undir skrokknum en flugmanninn sakaði ekki.

NTSB telur orsök atviksins vera mistök flugmannsins við að setja niður hjólin auk þess sem spjaldtölva hans kom í veg fyrir að hann sá stöðuna á skaftinu sem setur niður hjólin auk þess sem honum fannst hann vera undir þrýstingi að lenda vélinni sem fyrst.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga