flugfréttir

Semja um lán upp á 360 milljarða fyrir British Airways

22. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 20:46

Flugvélar British Airways á Gatwick-flugvelli

British Airways hefur náð viðamiklu samkomulagi bæði um frestun á greiðslum í lífeyrissjóði starfsmanna auk þess sem flugfélagið breska hefur samið um lán við ellefu breska banka um lán upp á 2 milljarða Sterlingspunda sem samsvarar 360 milljöðrum króna.

Lokið hefur verið við saminginn sem upphaflega var gerður þann 31. desember sl. og verður upphæðin greidd til British Airways á næstu dögum. Með þessu verður hægt að tryggja rekstur félagsins þangað til að millilandaflug kemst aftur í rétt horf eftir faraldurinn.

Þá er talið að með láninu verði hægt að bæta upp tekjutapið og létta róður flugfélagsins sem hefur þurft að leggja nánast öllum flugflota félagsins á meðan eftirspurn eftir farþegaflugi er í lágmarki.

British Airways, sem vanalega greiðir um 6,7 milljarða króna í breska lífeyrissjóði fyrir starfsmenn sína á mánuði, hefur gert samning við New Airways Pension Scheme (NAPS) sjóðinn um að fresta greiðslum fram í september í haust.

Fram kemur að móðurfélagið IAG sé að skoða fleiri sparnaðarleiðir til þess að auka lausafé British Airways en meðal annars þá ætlar félagið ekki að greiða arð til stjórnarformanna að minnsta kosti fram til ársins 2024.

Tekjur IAG drógust saman um 90 prósent síðastliðið sumar á meðan farþegum fækkaði um 98% þegar fyrsta útgöngubannið var sett á í Bretlandi.

Yfir eitt þúsund milljarða króna tap var á rekstri IAG á þriðja ársfjórðungi ársins 2020 en von er á því að fyrirtækið birti afkomuskýrslu fyrir árið 2020 í heild sinni næstkomandi föstudag.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga