flugfréttir
Ætla að panta allt að 30 nýjar þotur á næstu 4 árum
- Enn og aftur stefnir Thai Airways á flugvélakaup
Flugvélar frá Thai Airways á Suvarnabhumi-flugvellinum í Bangkok í Tælandi
Tælenska flugfélagið Thai Airways segist stefna á að panta allt að 30 farþegaþotur á næstu fjórum árum eða fram til ársins 2025.
Thai Airways gerir ráð fyrir að flugfélagið verði búið að ná sér að fullu eftir ástandið vegna heimsfaraldursins fyrir árið 2025 og segir félagið að kaup á 20 til 30 þotum til viðbótar eigi eftir að styrkja markaðsstöðu félagsins.
„Áætlunin um að panta nýjar þotur verður borin undir gjaldþrotadómstól þann 2. mars næstkomandi og yrðu þau áform hluti ef endurskipulagningu félagsins“, kemur fram samkvæmt heimildum.
Nýju þoturnar myndu koma í stað eldri flugvéla sem Thai Airways hefur sett á sölu
en félagið hefur auglýst eftir tilboðum í átján Boeing 777 þotur, tíu Boeing 747 júmbó-þotur, tvær Boeing 737-400 þotur, níu Airbus A340 breiðþotur, tvær Airbus A380
risaþotur og eina Airbus A300 þotu.
Þetta er hinsvegar ekki í fyrsta sinn sem Thai Airways stefnir á flugvélakaup sem verða að engu því í júlí árið 2018 greindi félagið frá því að til stæði að panta 23 nýjar þotur að andvirði 385 milljarða króna og þá sagði félagið einnig árið 2017 að endurnýjun á flugflota væri í deiglunni en þá stóð til að panta 30 nýjar þotur sem ekkert varð úr.
Thai Airways pantaði árið 2003 og árið 2004 tíu Airbus A340-500 og A340-600 breiðþotur en sú pöntun kom félaginu í töluverða fjárhagsörðugleika.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.