flugfréttir
Boeing á að laga öll vandamál fyrst en ekki spá í nýrri þotu
John Plueger, framkvæmdarstjóri flugvélaleigufyrirtækisins Air Lease Corporation
Flugvélaleigufyrirtækið Air Lease Corporation, sem er ein stærsta flugvélaleiga heims, segir að Boeing eigi frekar að einblína á að ljúka við að lagfæra þau vandamál sem framleiðandinn er að glíma við varðandi þær þotur sem fyrirtækið framleiðir í dag í stað þess að vera að eyða tíma í að þróa nýja farþegaþotu.
Reglulega berast fregnir um að verið sé að undirbúa þróun á nýrri þotu sem er
ætlað að verða einskonar arftaki Boeing 757 og Boeing 767 en Boeing hefur nefnt
þá þotu „New Midsize Aircraft“ (NMA) þótt að talið sé að þar sem um að ræða
þotu sem mun koma til með að nefnast Boeing 797.
John Plueger, framkvæmdarstjóri Air Lease, segir að áður en Boeing fer að ráðst
í að þróa aðra farþegaþotu væri nær að laga þau vandamál sem framleiðandinn
stendur frammi fyrir í dag og koma framleiðslunni í rétt horf.
„Við viljum að Boeing lagi allt sem er að ganga á innan fyrirtækisins. Seinkanir
með Boeing 787 eru að valda okkur vandræðum auk þess sem vandræði hafa
komið upp við afhendingar og einnig við samsetningu á þotunum“, segir Plueger.
„Boeing hefur gengið í gegnum gríðarlega erfiða tíma og þrátt fyrir að þeir hafi
náð mjög góðum árangri í að glíma við þessi vandamál þá er sannleikurinn sá að þeir
þurfa að klára að laga öll þessi atriði hjá sér fyrst en þangað til höfum við
engan áhuga á að ræða við þá um einhverja nýja flugvél“, bætir Plueger við.
Plueger segir að það sé í forgangi að koma með endanlega lausn á vandamálunum
varðandi Dreamliner-þoturnar en eins og staðan er í dag segist hann að það skorti
alla skýra sýn hjá Boeing varðandi varanlega lausn á vandamálunum.
Plueger segir að það hafi reynst mjög erfitt fyrir Boeing að finna lausnir á þessum
vandamálum og svo lengi sem þoturnar uppfylli skilyrði frá flugmálayfirvöld þá sé
hægt að nota vélarnar „eins og þær eru“ en meðal þeirra vandamála sem hafa komið
upp er hárþunn rifa eða bil á milli eininga í skrokk vélanna sem uppgötvuðust í fyrra.
Þetta hefur valdið því að seinkanir hafa orðið á afhendingum og hefur ekki ein Dreamliner-þota verið afhent til Air Lease frá því í október í fyrra en samt sem áður hefur engin viðskiptavinur hætt við leigusamning vegna þess hversu lengi afhendingar hafa dregist á langinn.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.