flugfréttir

TWA800 flakið verður tekið í sundir og fargað

- Lofuðu aðstandendum að flakið yrði aldrei til sýnis fyrir almenning

24. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 12:27

Flakið af Boeing 747-100 þotu TWA sem fórst þann 17. júlí árið 1996 hefur verið geymt í meira en tvo áratugi í vöruhúsi hjá NTSB

Samgönguöryggisnefnd Bandaríkjanna (NTSB) segir að til standi að taka niður og fleygja samansettu leifum af flaki af júmbó-þotu frá Trans World Airlines (TWA) en flug TWA800 fórst skömmu eftir flugtak frá Kennedy-flugvellinum í New York árið 1996.

Flakið hefur í mörg ár verið notað til þjálfunar fyrir þá aðila sem koma að rannsóknum á flugslysum en rannsókn slyssins var ein sú flóknasta, dýrasta og viðamesta í sögu flugsins en alls tók það 4 ár að rannsaka slysið og hljóp kostnaðurinn við rannsóknina á 5 milljörðum króna.

Í nokkrar vikur var brak fjarlægt úr sjónum nálægt Long Island og flutt í stórt vöruhús á svæði sem NTSB notar sem þjálfunaraðstöðu en flakið hefur verið geymt þar í yfir tvo áratugi og notað til kennslu og til þjálfunar fyrir þúsundir aðila sem sérhæfa sig í rannsóknum á flugslysum.

Síðastliðinn mánudag greindi NTSB frá því að flakið verði urðar þar sem leigan á vöruhúsinu er að renna út og verður leigusamningurinn ekki endurnýjaður aftur.

NTSB segir að nýstárlegar rannsóknaraðferðir hafa einnig verið að leysa af hólmi eldri aðferðir og hefur þrívíddarskimun og myndatökur með drónum rutt sér til rúms í dag og er því ekki eins nauðsynlegt lengur að púsla saman braki eftir flugslys og því minni þörf til þess að kenna slíkar aðferðir.

Rannsóknin á TWA800 slysinu var ein sú flóknasta og dýrasta í sögu flugsins

NTSB gerði á sínum tíma sáttmála við ættingja og aðstandendur þeirra sem létust í slysinu að flakið myndi aldrei verða til sýnis almenningi og þá hefur öllum þeim sem hafa verið nálægt flakinu vegna kennslu verið bannað að taka ljósmyndir af því.

„Til að virða þann sáttmála sem gerður var við fjölskyldur fórnarlamba þeirra sem voru um borð í flugi TWA800 þá mun NTSB vinna náið með verktökum á vegum bandarísku ríkisstjórnarinnar að því að taka flakið í sundir og farga því“, segir í yfirlýsingu.

Um borð í þotunni, sem var af gerðinni Boeing 747-100, voru 212 farþegar og átján áhafnameðlimir og var engin sem lifði slysið af en slysið var rakið til sprengingar sem varð í eldsneytistanki milli vængjanna um 12 mínútum eftir flugtak.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga