flugfréttir
Leita leiða til að rifta pöntunum hjá Boeing og Airbus
- Eiga útistandandi pantanir í 185 þotur
Dreamliner-þota frá Norwegian á Gardermoen-flugvellinum í Osló
Norwegian leitar nú leiða til þess að rifta þeim samningum sem félagið hafði gert fyrir nokkrum árum síðan við Boeing og Airbus varðandi pantanir á nýjum farþegaþotum.
Norwegian er að gangast undir töluverða endurnýjun á rekstri þessa daganna til að aðlaga sig að breyttu umhverfi í flugiðnaðinum og þá einnig vegna gjaldþrotameðferðar og þarf félagið því að uppfylla skilyrði sem dómstólar á Írlandi og í Noregi hafa farið fram á.
Norwegian þarf ekki einungis að breyta þeim leigusamningum sem félagið hefur gert við flugvélaleigur heldur þarf félagið líka að hætta við þær pantanir sem félagið lagði inn til Boeing og Airbus að sögn þeirra sem þekkja til.
Endurskipulagsferlið hefur þegar orðið til þess að Norwegian ætlar að hætta öllu langflugi
yfir Atlantshafið og hefur félagið þegar skilað 37 Dreamliner-þotum aftur til leigusala.
Núna segir að Norwegian sé að vinna að því að koma sér undan
þeim skuldbindingum sem félagið hefur gert við Boeing og Airbus en
Norwegian á inni pöntun í 88 þotur hjá Airbus sem samanstendur
af 58 þotum af gerðinni Airbus A320neo og þrjátíu af gerðinni Airbus A321neo.
Þá á Norwegian eftir að fá 97 þotur frá Boeing en félagið átti von
á fimm Boeing 787 þotum og 92 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX.
Bæði Boeing og Airbus búa sig undir að fá enn fleiri beiðnir um afbókanir í pantanir frá flugfélögum á meðan heimsfaraldurinn nálgast annað árið en fram kemur að Airbus sé í viðræðum við annað flugfélag sem er að endurskoða risastóra pöntun í Airbus A320neo þotur sem er asíska lágfargjaldafélagið Air Asia.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.