flugfréttir
Czech Airlines stefnir á að segja upp öllu starfsfólki sínu
Tékkneska flugfélagið Czech Airlines stefnir á að segja upp öllu starfsfólki sínu
Tékkneska flugfélagið Czech Airlines (CSA) hefur lýst því yfir að til standi að segja upp öllu starfsfólki félagsins en um 430 starfsmenn starfa hjá félaginu.
Nokkrir erlendir fréttamiðlar greina frá því að mögulegt er að gjaldþrot félagsins sé yfirvofandi
en Czech Airlines hefur sent tilkynningu til atvinnumálastofnunnar Tékklands þar sem fram kemur
að verið sé að undirbúa hópuppsögn á 430 starfsmönnum.
Czech Airlines hefur að undanförnu starfað í skjóli gjaldþrotameðferðar til þess að vernd frá
lánadrottnum og kröfuhöfum en sú vernd rennur út næstkomandi laugardag þann 27. febrúar.
Flugfélagið hefur verið að bíða eftir fjárhagsaðstoð frá tékkneska ríkinu en stjórnvöld buðust
til þess í maí sl. vor að veita aðstoð til Smartwings, móðurfélags Czech Airlines, en það félag neitaði
að þiggja aðstoðina vegna óánægju með þá skilmála sem þurfti að uppfylla en að þessu sinni ætlar
ríkisstjórnin ekki að veita aðstoð aftur.
Fram kemur að Czech Airlines ætli sér ekki að stöðva starfsemi félagsins og segir að endurskipulagsferlið
muni halda áfram og sé hópuppsögnin hluti af því ferli.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.