flugfréttir

Hlaut augnskaða af lendingarljósum

- Flugvallarstarfsmaður fluttur á sjúkrahús

26. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 07:03

Atvikið átti sér stað á Pulkovo-flugvellinum í Pétursborg fyrr í vikunni

Flytja þurfti flugvallarstarfsmann í Rússlandi á sjúkrahús eftir að hann hlaut augnskaða eftir að áhöfn flugvélar, sem hann var að leiðbeina inn á flughlað, blikkaði lendingarljósunum á stæðinu er hann var fyrir framan flugvélina.

Flugvélin, sem er af gerðinni Boeing 737-800, var nýlent á flugvellinum í Pétursborg eftir áætlunarflug frá Moskvu sl. miðvikudag þegar þotan var að aka inn á stæði.

Þegar þotan var að leggja á stæði blikkuðu lendingarljós tvisvar á flugvélinni en þá var flugvallarstarfsmaður staðsettur rétt fyrir framan ljósin og kenndi hann sér mein og þurfti að flytja hann til augnlæknis.

Í ljós kom að starfsmaðurinn hafði hlotið bruna á hornhimnu og augnhimnu eftir bjarmann frá lendingarljósunum en hann var meðhöndlaður með augndropum og segja augnlæknar að hann muni ná sér að fullu eftir nokkrar vikur.

Í tilkynningu frá Pulkovo-flugvellinum kemur fram að aðfaranótt 24. febrúar hafi átt sér stað atvik þar sem að starfsmaður hafi verið sendur af flugvellinum á bráðamóttöku eftir að hann hafi orðið fyrir augnskaða eftir að hann þjónustaði flugvél skömmu eftir lendingu.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga