flugfréttir

Bókanir taka kipp er Bretar kynna afléttingu á ferðahöftum

26. febrúar 2021

|

Frétt skrifuð kl. 08:36

Flugvélar frá easyJet á Gatwick-flugvellinum í London

Nokkur bresk flugfélög og þar á meðal easyJet og einnig ferðaskrifstofur í Bretland hafa tilkynnt að þau hafa orðið vör við gríðarlega eftirspurn og mikinn kipp í bókunum á flugi á bókunarsíðum eftir að Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti að til stæði að aflétta ferðatakmörkunum er kemur að millilandaflugi til og frá Bretlandi.

Bresk stjórnvöld hafa tilkynnt að þann 12. apríl næstkomandi verða kynntar áætlanir um hvernig hægt verði að leyfa aftur fólki að ferðast til og frá Bretlandi og mögulega væri hægt að hefja aftur millilandaflug án núverandi takmarkanna frá og með 17. maí.

Nokkrum klukkutímum eftir þessa tilkynningu jukust bókanir á vefsíðu breska lágfargjaldafélagsins easyJet á flugi yfir sumartímann um 600 prósent samanborið við seinustu viku.

„Við erum sífellt að sjá meiri áhuga á bókunum á flugi og gefur það því auga leið að eftirspurnin er til staðar og er fólk því að bíða eftir að sá tími kemur að ríkisstjórnin opni aftur landamæri Bretlands“, segir Johan Lundgren, framkvæmdarstjóri félagsins.

Lundgren segir að þótt að það sé enn þónokkur tími í sumarið þá sé easyJet að vinna hörðum höndum að því að undirbúa sig fyrir sumarvertíðina þar sem flest bendir til þess að farþegar séu í startholunum með að komast í fríið og hitta vini og ættingja erlendis.

Meðal þeirra áfangastaða sem easyJet segir að séu vinsælastir í sumar eru strandstaðir í Tyrklandi, Malaga, Alicante, Mallorca, Faro í Portúgal og Krít.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga