flugfréttir
Saudi Arabian undirbýr pantanir í 70 þotur frá Boeing og Airbus
Sagt er að Saudi Arabian Airlines ætlar að leggja inn pöntun í allt að 70 þotur til Boeing og Airbus
Sagt er að sádí-arabíska ríkisflugfélagið Saudi Arabian Airlines ætli sér að leggja inn stórar pantanir bæði til Boeing og Airbus í allt að 70 þotur.
Þetta kemur fram í fjölmiðlum þar í landi og er tekið fram að Saudi Arabian Airlines sé í viðræðum við nokkra banka í Sádí-Arabíu um fjármögnun upp á 384 milljarða
króna vegna fyrirhugaðra flugvélakaupa.
Þær þotur sem flugfélagið stefnir á að kaupa eru af gerðinni Boeing 777, Dreamliner
og þotur úr Airbus A320neo fjölskyldunni en ekki kemur fram hversu margar flugvélar af hverri tegund
félagið ætlar að panta.
Saudi Arabian á þegar von á því að fá þrjátíu Airbus A320neo þotur afhentar frá Airbus auk fimm þotna af gerðinni A321neo og þá á félagið von á fimmtán þotum af gerðinni Airbus A321LR og fimmtán langdrægar A321XLR þotur.
Félagið hefur enn ekki fengið neinar þotur afhentar úr A320neo fjölskyldunni en félagið lagði inn pantanir í þær þotur í júní árið 2019.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.