flugfréttir
Kínverjar ekki tilbúnir að leyfa 737 MAX að fljúga strax
- Fara fram á nánari skoðun og rannsókn á orsök flugslyssanna tveggja

Boeing 737 MAX þota frá Air China
Flugmálayfirvöld í Kína eru ekki tilbúin til þess að gefa út vottun strax fyrir Boeing 737 MAX þoturnar og aflétta flugbanni vélanna þar í landi.
Samkvæmt heimildum kemur fram að kínversk flugmálayfirvöld vilja
framkvæma sína eigin prófanir og sannreyna þær endurbætur sem Boeing hefur gert á flugvélunum áður en grænt ljós er gefið út fyrir noktun vélanna í Kína.
Dong Zhiyi, yfirmaður hjá kínverskum flugmálayfirvöldum (CAAC), segir að stofnunin vinni náið með Boeing og bandarískum flugmálayfirvöldum til þess að réttlæta þær lagfæringar sem gerðar hafa verið og tekur fram að enn séu nokkur atriði sem þarf að leysa áður en MAX þoturnar fá að fljúga í Kína.
Farið er fram á að öll atriði og uppfærslur á þotunni séu yfirfarin í Kína og þá er
verið að athuga hvort gerð verði krafa um að sérfræðingar í Kína rannsaki
nánar hversvegna tvö flugslys áttu sér stað í Eþíópíu og í Indónesíu og fá einhvera
skýrari mynd á orsök þeirra slysa áður en vottun verður gefin út.
Kína var fyrsta landið til þess að setja á flugbann eftir fyrra flugslysið í mars árið 2019 og margt bendir til þess að landið verði einnig með þeim seinustu til þess að leyfa notkun á Boeing 737 MAX en flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum, Evrópu, Brasilíu, Mexíkó, Sádí-Arabíu og víðar
hafa öll aflétt flugbanninu í dag.
Yfir 10 viðskiptavini er að finna í Kína sem hafa pantað Boeing 737 MAX þoturnar og meðal þeirra eru þrjú stærstu flugfélög Kína sem eru Air China, China Southern og China Eastern.


21. janúar 2021
|
Norska flugfélagið Norwegian hefur lýst því yfir að ríkisstjórn Noregs ætli sér að styðja við bakið á flugfélaginu með fyrirhugaðri fjárhagsaðstoð.

25. janúar 2021
|
Hjól féll til jarðar af lítilli flugvél í Chicago í Illinois í Bandaríkjunum í seinustu viku en dekkið endaði í garði við einbýlishús.

11. mars 2021
|
Orðrómur er um að bandaríska flugfélagið Southwest Airlines sé að fara að tilkynna risastóra pöntun til Boeing í yfir 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

16. apríl 2021
|
Jozef Varadi, framkvæmdarstjóri Wizz Air, segist hafa misst trúna á sumrinu 2021 og er ekki lengur eins bjartsýnn á að sumarið verði eins gott og hann var í fyrra þegar hann taldi að lágfargjaldafél

16. apríl 2021
|
Isavia hefur tilkynnt um nýja forstöðumenn sem hafa verið ráðnir í stöður innan fyrirtækisins. Raquelita Rós Aguilar hefur verið ráðin forstöðumaður starfrænnar þróunar hjá Isavia en Raquelita er með

16. apríl 2021
|
Farþegaþota af gerðinni Boeing 737-700 var í vikunni gerð upptæk af eigendum vélarinnar á flugvellinum í Miami vegna vangoldinna leigugjalda.

15. apríl 2021
|
Talið er að mistök við jafnvægisútreikninga á hleðsluáætlun er varðar þyngdardreifingu á farþegum og frakt hafi verið orsök alvarlegs atviks sem átti sér stað er Airbus A320 þota frá ítalska flugféla

15. apríl 2021
|
Breska fyrirtækið Thyme Opco hefur tilkynnt um að það hafi lokið við kaup á þrotabúi breska lágfargjaldaflugfélagsins Flybe og sé stefnt að því að Flybe muni hefja flug á ný í sumar.

14. apríl 2021
|
Alan Joyce, framkvæmdarstjóri Qantas, segir að flugfélagið ástralska sé staðráðið í að fljúga öllum Airbus A380 risaþotunum aftur á nýjan leik eftir heimsfaraldurinn.

13. apríl 2021
|
Ástralska flugfélagið Qantas er staðráðið í að hefja millilandaflug á ný að fullum krafti síðar á þessu ári þrátt fyrir að tafir hafi orðið á bólusetningu í Ástralíu.

13. apríl 2021
|
Nokkrir farþegar hafa leitað réttar síns eftir að hafa orðið fyrir andlegu áfalli er þeir voru um borð í Boeing 777 þotu frá United Airlines þegar upp kom sprenging í öðrum hreyfli vélarinnar skömmu