flugfréttir

Kínverjar ekki tilbúnir að leyfa 737 MAX að fljúga strax

- Fara fram á nánari skoðun og rannsókn á orsök flugslyssanna tveggja

1. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:27

Boeing 737 MAX þota frá Air China

Flugmálayfirvöld í Kína eru ekki tilbúin til þess að gefa út vottun strax fyrir Boeing 737 MAX þoturnar og aflétta flugbanni vélanna þar í landi.

Samkvæmt heimildum kemur fram að kínversk flugmálayfirvöld vilja framkvæma sína eigin prófanir og sannreyna þær endurbætur sem Boeing hefur gert á flugvélunum áður en grænt ljós er gefið út fyrir noktun vélanna í Kína.

Dong Zhiyi, yfirmaður hjá kínverskum flugmálayfirvöldum (CAAC), segir að stofnunin vinni náið með Boeing og bandarískum flugmálayfirvöldum til þess að réttlæta þær lagfæringar sem gerðar hafa verið og tekur fram að enn séu nokkur atriði sem þarf að leysa áður en MAX þoturnar fá að fljúga í Kína.

Farið er fram á að öll atriði og uppfærslur á þotunni séu yfirfarin í Kína og þá er verið að athuga hvort gerð verði krafa um að sérfræðingar í Kína rannsaki nánar hversvegna tvö flugslys áttu sér stað í Eþíópíu og í Indónesíu og fá einhvera skýrari mynd á orsök þeirra slysa áður en vottun verður gefin út.

Kína var fyrsta landið til þess að setja á flugbann eftir fyrra flugslysið í mars árið 2019 og margt bendir til þess að landið verði einnig með þeim seinustu til þess að leyfa notkun á Boeing 737 MAX en flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum, Evrópu, Brasilíu, Mexíkó, Sádí-Arabíu og víðar hafa öll aflétt flugbanninu í dag.

Yfir 10 viðskiptavini er að finna í Kína sem hafa pantað Boeing 737 MAX þoturnar og meðal þeirra eru þrjú stærstu flugfélög Kína sem eru Air China, China Southern og China Eastern.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga