flugfréttir
United pantar 25 Boeing 737 MAX þotur til viðbótar
- Semja um að hraða afhendingum á 40 MAX þotum af eldri pöntun
Boeing 737 MAX 9 þota frá United Airlines á flugvellinum í Houston í Texas í Bandaríkjunum
Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur lagt inn nýja pöntun til Boeing í 25 farþegaþotur til viðbótar af gerðinni Boeing 737 MAX.
Þá hefur United Airlines einnig samið við Boeing um að flýta fyrir afhendingum á öðrum Boeing 737 MAX
þotum sem félagið hafði áður pantað þar sem flugfélagið sér fram á að eftirspurn eftir farþegaflugi
eigi eftir að aukast á næstunni.
„Þar sem við undirbúum okkur fyrir að eftirspurn eftir flugi fari að koma aftur til baka þá höfum
við verið að skoða flotastefnu okkar og hvernig við getum verið í stakk búnir að bregðast við aukinni
eftirspurn um leið og fólk fer að ferðast á ný“, segir Andrew Nocella, rekstarstjóri United Airlines.
Þær Boeing 737 MAX þotur sem United Airlines pantaði núna verða afhentar frá og með árinu 2023
en þá hefur félagið flýtt afhendingum á 40 þotum og verða þær afhentar frá og með árinu 2022 í stað
ársins 2023.
Í heildina á United Airlines von á 188 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX en félagið hefur í dag fengið
30 þotur afhentar af gerðinni Boeing 737 MAX 9 og á félagið von á 55 til viðbótar af þeirri gerð og 100
þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 10.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.