flugfréttir

Konum í flugnámi fer fjölgandi

2. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 22:05

Í dag eru 65 konur sem stunda flugnám við Flugakademíu Íslands en þær voru 37 talsins árið 2018

Nemendum við Flugakademíu Íslands fer enn fjölgandi en 268 nemendur stunda nú nám við skólann. Þar af leggja flestir stund á atvinnuflugmannsnám eða 231. Fjórðungur nemenda skólans eru konur en hefur þeim farið ört fjölgandi á undanförnum árum, 37 konur stunduðu atvinnuflugnám við Keili árið 2018 en nú eru þær 65 talsins.

Starfsfólk mennta- og þjónustusviðs Keilis tók nýverið saman tölulegar upplýsingar um nemendur og skóla Keilis. Gögnin voru svo unnin og efni þeirra birt á myndrænan hátt sem áhugasamir geta glöggvað sig á vef skólans.

Meðalaldur nemenda er 26 ár. Yngstir eru nemendur í einkaflugmannsnámi en meðalaldur þeirra er 23 ár, en aldurstakmark í það nám er lægra en í atvinnuflugmannsnámið eða 16 ára í stað 18. Hæst hlutfall nemenda, 68%, er búsett á höfuðborgarsvæðinu en 18% búa á Reykjanesinu.  

Við Flugakademíu Íslands starfa 84 kennarar. Flestir þeirra starfa eða hafa starfað sem atvinnuflugmenn hjá flugfélögunum og margur hver stundað nám við skólann. Þar af kenna 60 verklegan hluta námsins og eru 3 nemendur í þjálfun fyrir hvern verklegan flugkennara.  

Þá starfa einnig flugumferðarstjórar og veðurfræðingur við kennslu. Skólinn rekur 18 kennsluvélar, átta fjögurra sæta vélar og tíu tveggja sæta.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga