flugfréttir
Boeing varar við hættu í eldsneytistönkum á A321XLR
- EASA fær athugasemd frá Boeing vegna varasamrar hönnunar hjá Airbus
EASA mun fara yfir athugasemdir frá Boeing vegna hönnunarinnar
Boeing hefur sent evrópskum flugmálayfirvöldum (EASA) erindi þar sem flugvélaframleiðandinn bandaríski varar við mögulegri hættu á þeim eldsneytistönkum sem Airbus hyggst koma fyrir í miðju skrokksins á nýju Airbus A321XLR þotunum.
Airbus A321XLR verður enn langdrægari útgáfa af Airbus A321LR þotunni en sú þota verður framleidd með sérstökum „varanlegum “ miðjueldsneytistanki sem gefur henni þá eiginleika að geta flogið 4.700 nm og mun
sá tankur geta borið enn meira eldsneyti en viðbótareldsneytistankar á Airbus A321LR þotunni í dag.
Í erindi sem EASA hefur fengið inn á borð til sín varar Boeing við áformum Airbus um að notast
við slíkan eldsneytistank sem getur skapað hættu til að mynda ef upp kemur neyðartilfelli.
„Staðsetningin á eldsneytistanki, sem er ætlað að vera fastur við burðarvirkið og óaðskiljanlegur frá
búkknum, og þá sérstaklega þegar hann er staðsettur beint fyrir aftan hjólarýmið fyrir
aðalhjólastellin, getur verið mjög varasamt og skapað hættu“, segir í yfirlýsingu frá Boeing.
Boeing bendir á að ef upp koma aðstæður á borð við nauðlendingu þar sem hjólastellið brotnar
við lendingu þá getur samanfallið hjól eða brak úr hjólabúnaðinum farið í eldsneytistankinn
með þeim afleiðingum að eldur kemur upp.
Á meðan flestir miðjueldsneytistankar („center wing tanks“) eru staðsettir á milli vængjanna þá
gerir Airbus ráð fyrir að koma tveimur slíkum tönkum fyrir um borð í A321XLR þotunni þar
sem að öðru leyti hefði verið gert ráð fyrir fraktrými.
Þar af leiðandi mun A321XLR þotan ekki geta borið eins mikla frakt og A321LR en á móti
kemur að A321XLR verður langdrægasta farþegaþota heims í flokki þeirra þotna sem koma
með einum gangi á milli sætaraða.
Airbus stefnir á að koma tveimur viðbótareldsneytistönkum fyrir á Airbus A321XLR þotunni sem staðsettir verða fyrir aftan aðalhjólastell vélarinnar
Fram kemur að slíkir tankar hafi þegar skapað vandamál þar sem staðsetning þeirra er mjög nálægt
gólfinu í farþegarýminu sem þýðir að gólfið verður mun kaldara og að koma fyrir eingangrun
til að minnka kuldann getur reynst erfitt.
EASA segir að athugasemdirnar frá Boeing vegna eldsneytistanksins um borð í A321XLR
verði teknar til skoðunar og viðeigandi ráðstafanir yrðu mögulega gerðar en slíkt gæti
haft áhrif á framleiðslu á A321XLR þotunni ef evrópsk flugmálayfirvöld ákveða að skoða málið
nánar.
Airbus ætlar að vera komið með A321XLR þotuna á markaðinn árið 2023 og hefur framleiðandinn fengið pantanir í á fimmta hundrað eintaka af vélinni. Sagt er að A321XLR eigi eftir að gefa Airbus mikið forskot á fyrirhugaðar hugmyndir Boeing um nýja
farþegaþotu sem kennd hefur verið við Boeing 797 þótt töluvert lengri tími væri í að sú þota kæmi á markað þar sem sú hugmynd er enn á byrjunarreit.
Airbus byrjaði að þreifa fyrir sér með langdræga útgáfu af Airbus A321 árið 2014 og í janúar á því ári var kynnt til leiks Airbus A321neoLR en nafninu var síðar breytt í A321LR.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.