flugfréttir
Flyr undirbýr sig fyrir samkeppni í Noregi
- Ætla að byrja með 8 þotur í sumar en stefna á allt að 30 þotur eftir 4 ár
Tölvugerð mynd af Boeing 737-800 í litum Flyr
Nýja norska sprotaflugfélaginu Flyr hefur tekist að safna um 8.8 milljörðum króna í stofnfé eftir hlutafjárútboð sem fram fór í Ósló og stefnir félagið á að hefja farþegaflug í sumar.
Stjórnendur Flyr veðja á að eftirspurn eftir flugi eigi eftir að koma kröftuglega til baka eftir að heimsfaraldrinum fer að linna og undirbýr félagið sig nú fyrir samkeppni við Norwegian og SAS (Scandinavian Airlines).
Svo gæti farið að Flyr eigi eftir að veita öðrum flugfélögum alvöru samkeppni
þar sem hlutabréf í félaginu hafa hækkað um allt að 20 prósent í norsku kauphöllunni
samkvæmt Nasdaq-vísitölunni.
Tonje Wikstroem Frislid, framkvæmdarstjóri Flyr, segir að það fé sem tekist hefur að
safna fyrir stofnkostnaði eigi eftir að gera félaginu kleift að grípa þau tækifæri sem eiga
eftir að gefast þegar iðnaðurinn fer að taka við sér á ný.
Sérstaklega er litið björgum augum til fyrstu áranna vegna fjölda flugvéla sem eru á lausu auk fjölda þeirra fagfólks sem hefur misst störf sín í fluginu að undanförnu og eru mörg hver reiðubúin að snúa aftir til starfa í iðnaðinum.
Flyr ætlar að byrja með flugflota sem telur 8 flugvélar og er áætlað að fjölga vélunum upp í allt að 30 þotur á næstu 3-4 árum en Erik G. Braathen, stofnandi Flyr, hefur þegar staðfest að félagið ætlar að hefja áætlunarflug í sumar með Boeing 737-800 þotum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.