flugfréttir

Fyrsta áætlunarflug Icelandair með 737 MAX eftir hlé

- Fyrsta áætlunarflugið með „Mývatn“ var til Köben í morgun

8. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 11:54

Icelandair er þriðja flugfélagið í Evrópu til þess að hefja á ný áætlunarflug með Boeing 737 MAX þotunum

Icelandair flaug í morgun fyrsta áætlunarflugið með Boeing 737 MAX eftir tæplega tveggja ára kyrrsetningu en fyrsta flugið var flug FI204 til Kaupmannahafnar.

Það var Boeing 737 MAX þotan „Mývatn“ (TF-ICN) sem flaug flugið til Köben og hóf þotan sig á loft frá Keflavíkurflugvelli kl. 7:55 í morgun og lenti í Kaupmannahöfn kl. 10:38 að íslenskum tíma og er áætlaður brottfarartími aftur heim til Keflavíkur klukkan 13:05.

Næsti áfangastaður þotunnar „Mývatn“ (TF-ICN) verður síðan París kl. 7:35 í fyrramálið en þess má geta að Icelandair er þriðja flugfélagið í Evrópu til þess að hefja aftur áætlunarflug með Boeing 737 MAX þotunum á eftir flugfélögunum TUI og Smartwings.

Mývatn hlaut mikla athygli um helgina er þotunni var flogið sérstakt undirbúningsflug sl. laugardagsmorgun með starfsmenn og stjórnendur Icelandair um borð en í þeirri flugferð var flogið um suðvesturhluta landsins og hóf þotan sig á loft frá Reykjavíkurflugvelli.

„Mývatn“ (TF-ICN) á Flightradar í morgun kl. 10:01 skammt frá Kristiansand í Noregi á leið til Kaupmannahafnar

Um 12 flugfélög í heiminum eru byrjuð að fljúga Boeing 737 MAX þotunum á ný en það voru bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) sem voru fyrst til þess að aflétta flugbanni vélanna þann 18. nóvember í fyrra og fylgdu evrópsk flugmálayfirvöld (EASA) í kjölfarið þann 27. janúar sl.

Klukkan 11:37 í morgun voru ellefu Boeing 737 MAX þotur í loftinu, ein á vegum flugfélagsins flyDubai, tvær í Brasilíu frá GOL Linhas Aereas, sex 737 MAX þotur frá American Airlines á milli Karíbahafsins og Flórídaskagans og tvær til viðbótar frá American Airlines á New York-svæðinu, báðar á leiðinni til Miami.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga