flugfréttir

Gert að skera niður flotann og fækka flugleiðum

- Alitalia þarf að hætta að fljúga til margra áfangastaða til að ná fram hagnaði

8. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 18:19

Airbus A319 þota frá Alitalia

Ítalska flugfélagið Alitalia, sem í dag ber heitið ITA (Italia Trasporto Aereo), þarf meðal annars að skera niður leiðarkerfi félagsins, fækka flugleiðum og segja upp starfsfólki í þeim tilgangi að skila inn hagnaði á ný.

Þetta kemur fram í skilmálum sem Evrópusambandið hefur sett svo að félagið geti fengið aðra fjárfesta inn í rekstur félagsins en Alitalia er sagt vera að reyna fá Lufthansa Group til að taka yfir rekstur félagsins.

Alitalia flaug í fyrra til yfir 100 áfangastaða áður en heimsfaraldurinn skall á en flýgur í dag til um fimmtíu áfangastaða. Félagið þarf að sætta sig við að fljúga til um 60 áfangastaða eftir endurskipulagningu félagsins en svo gæti farið að áfangastöðunum muni fjölga upp í 93 fyrir árið 2025 ef allt gengur upp.

Meðal þeirra breytinga sem félagið þarf að gera er að fækka flugferðum á milli Mílanó og Rómar, hætta flugi til Santiago í Chile sem var ekki að skila félaginu neinum arði, hætta flugi á milli Rómar og Pisa og einnig á milli Mílanó og Trapani.

Fram kemur að Bandaríkin séu í raun eini markaðurinn sem borgar sig að fljúga til frá Ítalíu í flugi á milli heimsálfa og mun félagið að öllum líkindum halda flugleiðinni á milli Rómar og New York en til stendur að hætta að fljúga til Pétursborgar, Kænugarðs, Búkarest og til Podgorica. Mögulega verður flogið áfram til Tókýó en Alitalia mun hætta að fljúga til Mexíkóborgar, Havana og til Seoul.

Þá mun félagið þurfa að skera niður flugflotan úr 113 þotum niður í 45 til 47 þotur en í dag eru um fjörutíu flugvélar í flotanum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga