flugfréttir

Hafa misst pantanir í 1.250 MAX-þotur vegna faraldursins

10. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 09:58

Boeing 737 MAX þotur við verksmiðjur Boeing í Renton

Boeing hefur í dag misst pantanir eða fengið beiðni um breytingar í pantanir vegna 1.250 eintaka af Boeing 737 MAX þotunni frá því í ársbyrjun ársins 2020 sem samsvarar 28% af öllum þeim MAX þotum sem pantaðar hafa verið frá upphafi.

Ástæðan er bæði vegna þess ástands sem hefur skapast vegna heimsfaraldursins og einnig vegna þeirra vandamála sem 737 MAX þoturnar hafa gengið í gegnum.

Í frétt Flightglobal.com segir að þrátt fyrir að Boeing hafi fengið einhverjar pantanir í Boeing 737 MAX þoturnar frá því að þær voru kyrrsettar í mars árið 2019 þá sé það aðeins brot af þeim 675 afpöntunum sem bárust til Boeing á tímabilinu frá janúar 2020 til febrúar á þessu ári.

Langflestir viðskiptavinirnir sem hafa hætt við Boeing 737 MAX þoturnar eru flugvélaleigufyrirtæki en einnig hafa stórir viðskiptavinir hætt við pantanir í MAX þoturnar og þá einna helst vegna ástandsins í flugiðnaðinum.

Boeing hefur fjarlægt um 570 þotur af pöntunarlista sínum frá því í janúar 2020 en þótt að framleiðandinn sé enn með samninga um að selja flestar af þeim þotum þá eru líkurnar hinsvegar minni að af því verði vegna fjárhagsstöðu meðal margra viðskiptavina.

Við lok febrúarmánaðar hafði Boeing útistandandi pantanir í 3.236 Boeing 737 MAX þotur en við lok ársins 2019 stóð pöntunarlistinn í 4.398 þotum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga