flugfréttir
Ætla að koma 488 sætum fyrir um borð í Airbus A350
Airbus A350-900 þota frá French Bee
Franska flugfélagið French Bee ætlar sér að koma 488 sætum fyrir um borð í þeim Airbus A350-1000 þotum sem félagið á von á að fá afhentar á næstunni.
Airbus A350-1000 þotan kemur með sætum fyrir 369 farþega en hámarksfjöldi þeirra sæta
sem hægt er að koma fyrir í farþegarýminu eru 480 sæti en French Bee ætlar að gera betur
og bæta við átta sætum til viðbótar.
French Bee ætlar að vera það flugfélag sem býður upp á lægstu fargjöld sem um getur með Airbus A350
þotunni en til þess að það gangi upp ætlar félagið að koma eins mörgum sætum fyrir í þotuna eins og
mögulegt er.
Flugfélagið hefur í dag fengið fjórar Airbus A350-900 þotur afhentar og á félagið von á tveimur
til viðbótar sem eru af stærstu gerðinni, A350-1000, og verða þær afhentar síðar á þessu ári.
French Bee var stofnað árið 2016 sem French Blue og flýgur félagið frá Orly-flugvellinum í París
til tveggja áfangastaða í dag sem eru Tahiti í Kyrrahafi og eyjan Réunion í Indlandshafi en í vor
hefst flug að nýju til San Francisco auk þess sem til stendur að hefja flug til Newark-flugvallarins
í New Jersey í Bandaríkjunum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.