flugfréttir

Flugmaður fannst á lífi eftir 36 daga veru í Amazon-skóginum

- Brotlenti Cessna Centurion flugvél í regnskóginum í lok janúar

10. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:07

Antonio Sena var að fljúga á milli tveggja bæja sem báðir eru við bakka Amazóns-fljótsins þegar bilun kom upp í mótornum

Flugmaður, sem lenti í þeirri lífsreynslu að hafa misst mótor á eins hreyfils flugvél sinni og brotlent í Amazón-regnskóginum í byrjun ársins, var sl. helgi bjargað úr skóginum eftir að hafa þraukað þar á lífi í 36 daga í von og óvon um að honum yrði bjargað.

Flugmaðurinn, sem er brasilískur og er
36 ára gamall, fór í lofti frá flugbraut í bænum Alenquer í Pará-héraði í Brasilíu þann 28. janúar sl. en flugvélin hans var af gerðinni Cessna 210 Centurion.

Förinni var heitið til bæjarins Almeirim sem staðsettur er í 240 kílómetra fjarlægð til austurs á bökkum Amazón-fljótsins en á leiðinni kom upp bilun í mótornum á flugvélinni og þurfti hann að nauðlenda í frumskóginum.

Antonio Scena hafði misst mörg kíló eftir fimm vikna dvöl í Amazón-regnskóginum

Flugmaðurinn, sem heitir Antonio Sena, lifði fyrst af á brauði sem hann náði að taka með sér frá borði áður en flugvélin varð alelda en einnig hafði hann borðað egg sem hann fann í hreiðrum og villta ávexti.

Leitin að Antonio hafði staðið yfir í fimm vikur en það var ekki fyrr en sl. laugardag sem að kastaníuhnetubændur fundu flugmanninn og komu honum til aðstoðar og gáfu þeir honum hnetur að borða og létu yfirvöld vita að þeir hefðu fundið mann sem hafði verið týndur í regnskóginum.

Antonio er atvinnuflugmaður og flýgur Embraer-þotum fyrir brasilískt flugfélag

Sjónvarpsstöðvar í Brasilíu sýndu beint frá því er Antonio hitti fjölskyldu sína á ný sl. mánudag áður en hann var færður á sjúkrahús til aðhlynningar vegna ofþornunnar auk þess sem gert var að sárum hans.

Antonio sagði í viðtali að það eina sem náði að halda í honum lífi og þrauka þessa erfiðu dvöl hafi verið fjölskylda hans, löngun hans til þess að sjá foreldra sína aftur og bróðir og systur. Antonio sagði að hann hafði varið töluverðum tíma við flak vélarinnar á meðan leit stóð yfir af honum en á endanum ákvað hann að leggja af stað fótgangandi í gegnum skóginn til þess að finna aðstoð.

Miklir fagnaðarfundir brutust út er Antonio hitti aftur fjölskyldu sína - Að neðan má sjá myndband af björguninni



Myndband:







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga