flugfréttir

Fjöldi farþega um Heathrow svipaður og árið 1966

- Aðeins 461.000 farþegar fóru um Heathrow í febrúar

11. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 14:15

Airbus A319 þota frá British Airways í retró-litum á Heathrow-flugvellinum í London

Farþegum um Heathrow-flugvöll heldur áfram að fækka vegna ferðatakmarkanna í heiminum sökum heimsfaraldursins en í febrúar voru aðeins 461.000 farþegar sem fóru um flugvöllinn.

Það jafngildir 16.400 farþegum á dag en fyrir heimsfaraldurinn fóru að jafnaði um 290.000 farþegar um Heathrow-flugvöll á hverjum degi eða um 88 milljónir farþega á mánuði.

Fara þarf meira en hálfa öld aftur í tímann til þess að finna sambærilegar tölur um farþegafjölda en um 400.000 farþegar fóru um Heathrow-flugvöll í hverjum mánuði árið 1966.

Á meðan farþegaflug hefur dregist saman um 92 prósent um Heathrow-flugvöll þá hefur minni samdráttur orðið í fraktflugi en 30% minna magn af frakt fór um Heathrow í febrúar en á sama tíma þá hefur fraktflug aukist að nýju um Charles de Gaulle flugvöllinn í París og það sama má segja um Frankfurt og Schiphol-flugvöllinn í Amsterdam.

John Holland-Kaye, framkvæmdarstjóri Heathrow-flugvallarins, segir að bæta þurfi skimanir á flugvellinum þar sem mjög langar raðir hafa myndast þar sem starfsmenn eru í vanda með að halda áætlun er kemur að skimunarferlinu.

Hinsvegar er von á því að breska ríkisstjórnin kynnir breytingar á ferðatakmörkunum þann 12. apríl næstkomandi og er þá von á að kynntar verða aðgerðir varðandi opnun á landamærum til og frá Bretlandi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga