flugfréttir

Southwest sagt vera að undirbúa risapöntun í 737 MAX

- Pöntun upp á allt að 300 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 7

11. mars 2021

|

Frétt skrifuð kl. 15:01

Ein af þeim Boeing 737 MAX 7 þotum sem Boeing hefur lokið við að smíða fyrir Southwest Airlines

Orðrómur er um að bandaríska flugfélagið Southwest Airlines sé að fara að tilkynna risastóra pöntun til Boeing í yfir 100 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX.

Samkvæmt fréttum Reuters þá kemur fram að Southwest Airlines sé á lokametrunum í samningaviðræðum við Boeing um kaup á 130 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 7 með möguleika á 170 þotum til viðbótar.

Ef Southwest mun nýta sér kaupréttinn einnig væri um eina stærstu pöntun að ræða í Boeing 737 MAX þoturnar þar sem flugfélagið bandaríska ætti því von á 300 MAX þotum með þeirri pöntun.

Southwest Airlines hefur nú þegar tekið við 55 þotum af gerðinni Boeing 737 MAX 8 og á félagið eftir að fá 225 afhentar til viðbótar og 30 þotur af gerðinni Boeing 737 MAX 7 sem þýðir af ef félagið leggur inn nýja pöntun mun félagið alls eiga von á því að komið með 737 MAX flugflota sem telur yfir 600 þotur í næstu árum.

Gary Kelly, framkvæmdarstjóri Southwest Airlines, greindi frá því í nóvember í fyrra að félagið myndi á næstunni gera upp hug sinn varðandi pöntun til að leysa af hólmi eldri Boeing 737-700 þotur og stæði valið á milli Boeing 737 MAX 7 og Airbus A220 (CSeries).

Kelly kom fram á blaðamannafundi í gær þar sem hann sagði að enn stæðu samningaviðræður yfir bæði við Boeing og Airbus og sagði hann að það væri vitaskuld kostur að hafa aðeins eina flugvélategund í flotanum en tók jafnframt fram að Airbus A220 væri „frábær flugvél“.

Boeing 737 MAX 7 er minnsta þotan í MAX fjölskyldunni og tekur hún um 153 farþega í sæti og hefur flugdrægi upp á 3.850 nm mílur sem samsvarar 7.130 kílómetrum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga