flugfréttir
American og United draga til baka 27.000 uppsagnir
Boeing 757-300 þota United Airlines í flugtaki á flugvellinum í Los Angeles og Boeing 767 breiðþota American Airlines í baksýn
Bæði American Airlines og United Airlines eru hætt við að segja upp um 27.000 starfsmönnum eins og til stóð eftir að ríkisstjórn Bandaríkjanna ákvað að greiða út björgunarpakka vegna heimsfaraldursins.
Doug Parker, framkvæmdarstjóri American Airlines, tilkynnti starfsfólki sínu að þeir sem höfðu fengið viðvörunarbréf með tilkynningu um uppsagnir geta tekið bréfið og rifið það í sundur og tekið gleði sína á ný.
American Airlines hafði tilkynnt að um 13.000 starfsmenn myndu missa vinnuna sína
í apríl og United Airlines gerði ráð fyrir að segja upp 14.000 starfsmönnum ef
bandaríska ríkisstjórnin myndi ekki endurnýja fjárhagsaðstoð sína til flugiðnaðarins.
Scott Kirby, framkvæmdarstjóri United Airlines, sagði að starfsmenn félagsins geta
með þessu haldið störfum sínum áfram og undirbúið aukna eftirspurn eftir flugi sem
framundan er á sama tíma og dreifing á bóluefni heldur áfram sem mun að lokum
binda endi á heimsfaraldurinn.
Með fjárhagsaðstoðinni skuldbinda bandarísk flugfélög sig til þess að segja ekki
upp starfsfólki fram til 30. september í haust en þrátt fyrir það þá er
farþegaflug vestanhafs ennþá aðeins um 40 prósent af þeim fjölda sem flaug með
farþegaflugi á sama tíma í fyrra.
Samtökin Airlines For America (A4A) áætla að stærstu flugfélögin í Bandaríkjunum séu að tapa um 150 milljónum Bandaríkjadölum á dag vegna heimsfaraldursins sem samsvarar 19.3 milljörðum króna.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.